Innlent

Héraðs­búar gerðu heima­gerðan jóla­ís handa Seyð­firðingum

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Starfskonur fjöldahjálparmiðstöðvarinnar á Seyðisfirði tóku við ísnum sem Katrín Reynisdóttir ásamt fleirum kom með til handa Seyðfirðingum frá nágrönnum þeirra á Héraði.
Starfskonur fjöldahjálparmiðstöðvarinnar á Seyðisfirði tóku við ísnum sem Katrín Reynisdóttir ásamt fleirum kom með til handa Seyðfirðingum frá nágrönnum þeirra á Héraði. Vísir/Vilhelm

Íbúar Múlaþings hafa margir hverjir tekið sig til að búið til heimagerðan jólaís og gefið Seyðfirðingum. Heldur óvenjuleg jól blasa við fjölmörgum Seyðfirðingum í ár í kjölfar náttúruhamfarananna sem þar hafa riðið yfir.

Þótt jólaísinn skipti ef til vill ekki miklu máli í stóra samhenginu, segir Katrín Reynisdóttir, íbúi á Egilsstöðum, að sér hafi þótt þetta góð hugmynd í ljósi þess að þeir Seyðfirðingar, sem hafa getað snúið aftur til síns heima, hafi um margt annað að hugsa þessa dagana en að búa til jólaís. 

„Mér fannst svona þegar að þeir voru komnir heim til sín að það yrði kannski ekki alveg mesta stuðið að vera að byrja að dunda við að gera einhvern jólaís,“ segir Katrín en ljósmyndari Vísis rakst á Katrínu í dag þar sem hún var í óða önn við að bera ís inn í fjöldahjálparstöðina á Seyðisfirði.

„Það var fullt af fólki uppi á Héraði og kannski víðar sem að bjó til jólaís til að fara með hingað niður á Seyðisfjörð. Svo höfum við bara verið að koma þessu út núna og bara gengið vel,” segir Katrín.

„Síðan erum við líka reyndar með þristamús frá Simma Vill sem gaf þúsund skammta af þristamús á Seiðisfjörð og það er bara glæsilegt. Það er svo gott að geta eitthvað pínulítið gert til að hjálpa til,“ segir Katrín og bætir við að fyrirtæki á svæðinu hafi jafnframt verið boðin og búin til að aðstoða.

„Flutningafyrirtækið Eimskip Flytjandi, þegar ég hafði samband við þá þá spurðu þeir strax “hvenær eigum við að koma?” útskýrir Katrín. Það fellur síðan í hlut þeirra Röggu og Rannveigar, sem að sögn Katrínar eru aðal manneskjurnar í eldhúsinu í fjöldahjálparmiðstöðinni í félagsheimilinu Herðubreið, að sjá um að koma ísnum út til íbúa Seyðisfjarðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×