Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá því í tilkynningu í morgun að lögreglan hafi verið kölluð út vegna samkvæmis í sal í útleigu í miðbæ Reykjavíkur. Þar á meðal, samkvæmt tilkynningu lögreglu, var „háttvirtur ráðherra í ríkisstjórn Íslands.“
Fréttastofa hefur ekki náð í Bjarna vegna málsins í dag.
Netverjar hafa leitað á Twitter til þess að lýsa yfir óánægju sinni með sóttvarnabrot ráðherrans. Margir gagnrýna ráðherrann en einhverjir hafa gert grín að ráðherranum og búið til jólaleik úr uppákomunni.
Þetta ráðherraskúbb er jóladagatalið mitt í ár - fyrst veit maður ekkert hver var í partýinu, svo útilokast einn ráðherra og svo annar og svo koll af kolli þar til maður fær aðalpakkann í lokin
— Jörundur Jörundsson (@jorundurj) December 24, 2020
Hvaða ráðherra var í partíi í gær? er hinn nýi Hver stal kökunni úr krúsinni í gær? .
— Kristján Freyr (@KrissRokk) December 24, 2020
Þetta ætti að vera augljóst. Það þarf bara að finna út hvaða ráðherra fékk kartöflu í skóinn í nótt.
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) December 24, 2020
Bail á möndlugrautnum í ár, jóla leikurinn í ár er hvaða ráðherra var í partýi í gær.
— Ingiríður Halldórsdó (@Igga96) December 24, 2020
Garðabær. 10:10. Aðfangadagsmorgun. pic.twitter.com/IHqUYyUwGi
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) December 24, 2020
Einhverjir hafa kallað eftir afsögn ráðherra.
Ef þessi ráðherra verður ekki búinn að segja af sér áður en kirkjuklukkurnar hringja inn jólin þá má Pfizer senda bóluefnið annað. Lýðveldinu er þá ekki viðbjargandi!
— Maggi Peran (@maggiperan) December 24, 2020
Þessi ráðherra þarf að segja af sér í dag!! Fokkaðu þér og gleðileg jól!
— H(alld)óra. (@halldorabirta) December 24, 2020
Almennt séð er talað um að konur fái verri útreið en karlar vegna afglapa í pólitík.
— Álfur Birkir (@AlfurBirkir) December 24, 2020
Nú er lag, jöfnum útreiðina. Viðhöldum háum siðferðisstandördum fyrir alla ráðherra. Hneykslumst almennilega
Ég kom frá dk og fór í sóttkví og tvö próf. Ég faðma samt ekki ömmur mínar til að vera alveg viss né vini mína eða aðra fjölskyldu.
— Berglind Vignis (@berglindvignis) December 24, 2020
En nei ráðherra vill ekki missa af partýinu. Þetta er svo stór fokkjú putti til þeirra sem eru að reyna sitt besta.
Þá eru einhverjir sem efast að Bjarni muni segja af sér í kjölfar þessa.
Held því miður að það verði engin afsögn í þessu ráðherra máli .. þessu verður sópað undir teppi og Bjarni verður orðinn forsætisráðherra eftir næstu kosningar
— Guðmundur Magnússon (@GummiMagnusson) December 24, 2020
Það bítur reyndar ekkert á Bjarna, þýðir voða lítið að hitna yfir þessu.
— Logi Pedro (@logipedro101) December 24, 2020
Jæja niðurstaðan er Bjarni samkvæmt Vísi. Líklega eini ráðherrann sem myndi ekki segja af sér. Veltur í raun á þjóðinni núna að gefa samstarfsflokkunum ekki séns á að halda áfram samstarfinu nema hann fari frá.
— Hafliði Breiðfjörð (@haflidib) December 24, 2020
Helgi Seljan fréttamaður og fleiri gera grín að yfirvöldum.
Almannavarnaryfirvöld sitja nú á fundi sem boðað var til í morgun þar sem stendur til að bæta inn undanþáguákvæði til handa andstæðingum Þriðja Ríkisins og samkomum þeirra á Þorláksmessu.
— Helgi Seljan (@helgiseljan) December 24, 2020
Jæja, hver af þessu góða fólki var í þessu partýi í gærkvöld? Eru þau öll jafn líkleg? pic.twitter.com/s5Vt2iLLXx
— ó s s (@josi_josi_josi) December 24, 2020
Man eftir að hafa verið þunnur á aðfangadag á mínum villtari árum. Og mögulega einhvern tímann jafnvel með þynnkumóral. En þetta er next level. #hvaðaráðherra
— Karl Sigurðsson (@kallisig) December 24, 2020
Er með svo vont vibe gagnvart þessu djammi í gær hjá ráðherra. Held að þetta gæti orðið langur dagur hjá okkur Góða Fólkinu.
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) December 24, 2020
Ok besti aðfangadagur EVER!
— Fanney Birna (@fanneybj) December 24, 2020
— Felix Bergsson (@FelixBergsson) December 24, 2020
Mjög áhugaverð byrjun á þessum aðfangadegi.
— Logi Pedro (@logipedro101) December 24, 2020