Mourinho færði Reguilón mat um jólin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2020 15:30 José Mourinho hugsar vel um leikmennina sína. getty/Lindsey Parnaby José Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, keypti mat handa Sergio Reguilón, leikmanni liðsins, fyrir jólin. „
Hann vissi að ég yrði einn á jólunum. Þegar ég kom á æfingu klukkan þrjú á jóladag var kassi á mínum stað í búningsklefanum. Í honum var svínakjöt sem búið var að elda,“ sagði Reguilón. „Hann sagði að ég þyrfti ekki að elda og ætti bara að hugsa um að borða nóg. Hann gerir alls konar svona hluti sem sjást ekki opinberlega en eru mikilvægir.“ Mourinho virðist reyndar hafa gaman að því að gefa Reguilón að borða. Eftir sigur Tottenham á Manchester City í lok nóvember keypti Portúgalinn kjötlæri handa spænska bakverðinum. Það kostaði hann 500 pund, eða níutíu þúsund íslenskar krónur. Strákarnir hans Mourinhos áttu að taka á móti Fulham í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en honum var frestað vegna kórónuveirusmita í herbúðum Fulham. Tottenham er í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 26 stig. Liðið er án sigurs í síðustu fjórum deildarleikjum sínum. Reguilón kom til Tottenham frá Real Madrid í haust og hefur leikið vel á sínu fyrsta tímabili á Englandi.
Enski boltinn Mest lesið Loks hreyfing á skrifstofunni hjá Liverpool Enski boltinn Segir AGF allt annað lið eftir að Mikael fór á miðjuna Fótbolti KR slítur samstarfinu „án nokkurs fyrirvara“ Íslenski boltinn Uppsöfnuð spjöld gætu haft áhrif: Tólf í banni Íslenski boltinn Palmer besti ungi leikmaðurinn en þó ekki í liði ársins Enski boltinn Nik eftir veisluna í Laugardal: Viljum halda pressunni á Val Íslenski boltinn KR áfrýjar niðurstöðu KSÍ Íslenski boltinn Hákon Arnar með stoðsendingu í mikilvægum sigri Lille Fótbolti Ólafur Karl þénaði mest af leikmönnum Bestu deildarinnar í fyrra Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Valur - Fylkir 2-0 | Bikarmeistararnir höfðu betur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Loks hreyfing á skrifstofunni hjá Liverpool Palmer besti ungi leikmaðurinn en þó ekki í liði ársins Antony hreinsaður af ásökunum í Brasilíu Fulham tekur Berge fram yfir McTominay Síungur Vardy tryggði nýliðunum stig Félix á leið til Chelsea á meðan Gallagher fer í hina áttina Guardiola: Haaland líður betur en á sama tíma í fyrra Þurftu að stækka klefann hjá Chelsea Segir Sterling hafa brugðist liðsfélögum sínum Söngurinn um Haaland kom í bakið á honum: „Fyndinn náungi“ Meistararnir byrja á sterkum sigri Brentford byrjar tímabilið á sigri Stefán Teitur fær þriðja þjálfarann í jafn mörgum leikjum Brady ánægður með ráðherrasoninn „Engar áhyggjur, við hittumst aftur“ Slot sammála Klopp varðandi hádegisleiki Durán sökkti Hömrunum Íslendingar á Englandi: Jóhann Berg og Willum Þór á skotskónum Milner sló met Giggs og tíu Newcastle-menn lönduðu sigri Havertz og Saka afgreiddu Úlfana „Ansi mikið breytt“ með komu Slots Sagði eyrnabólgu skýra fjarveru Sancho Salah sjóðheitur af stað að vanda „Ekki gott að við séum með 43 leikmenn“ „Það sjá allir hve mikilvægir varamenn eru“ Zirkzee hetjan í sínum fyrsta leik Schmeichel skammar Shaw fyrir að spila á EM Man. City dottið niður í ellefta sætið yfir mestu eyðsluna Ten Hag um kaupin á öllum þessum Ajax mönnum: Ekki bara mín ákvörðun Hafa eytt fjörutíu milljörðum í fyrrum lærisveina stjórans Sjá meira