Erlent

Herinn þarf að hjálpa vegna fjölda líka á Ítalíu

Samúel Karl Ólason skrifar
Framleiðendur líkkista á Ítalíui hafa átt erfitt með að útvega nægjanlega margar kistur á undanförnum dögum.
Framleiðendur líkkista á Ítalíui hafa átt erfitt með að útvega nægjanlega margar kistur á undanförnum dögum. Vísir/EPA

Ítalía mun líklegast taka fram úr Kína í dag varðandi fjölda látinna, þrátt fyrir að Kínverjar séu margfalt fleiri en Ítalir. Heilt yfir nálgast fjöldi látinna á heimsvísu tíu þúsund. Þar af dóu minnst 3.249 í Kína og hafa Ítalir staðfest 2.978 dauðsföll vegna Covid-19.

Samkvæmt talningu John Hopkins háskólans í Bandaríkjunum hafa greinst 222.542 smit á heimsvísu og þar af hafa 84.506 náð sér. Minnst 9.115 hafa dáið.

Frá 15. mars hafa um 350 manns dáið á hverjum degi á Ítalíu, að meðaltali. Því er líklegt að Ítalía, þar sem um 60 milljónir búa, taki fram úr Kína, þar sem um 1,4 milljarðar manna búa, seinna í dag.

Sjá einnig: Fjöldajarðarfarir og hinstu skilaboð gegnum snjalltæki

Sameinuðu þjóðirnar og yfirvöld Ítalíu segja stóra ástæðu þessa vera hve hár meðalaldur þjóðarinnar er. Ítalía er þar í öðru sæti á heimsvísu, á eftir Japan, og um 87 prósent þeirra sem hafa dáið á Ítalíu voru eldri en sjötugt.

Sjá einnig: Heilbrigðiskerfi Ítalíu að kikna undan álagi

Ástandið er sérstaklega slæmt í bænum Bergamo. Þar hefur herinn þurft að grípa inn í flytja lík frá bænum til brennslu. Um sextíu lík voru flutt í gærkvöldi. Líkbrennslan í Bergamo getur sinnt um 25 líkum á dag, sé hún starfrækt allan sólarhringinn, samkvæmt frétt Corriere Della Sera.

Á Ítalíu hefur ættingjum og vinum þeirra sem dáið hafa verið meinað að fylgja hinum látnu til grafar og hefur fjöldi hina látnu leitt til þess að framleiðendur líkkista hafa átt erfitt með að útvega þær sem þarf.

Þá hafa sjúkrahús tekið upp nýjar starfsreglur varðandi meðferð líka og á nú að setja látið fólk í kistur án þess að klæða þau, vegna smithættu.

Í frétt Guardian er sögð saga 88 ára manns sem dó í gær. Sá hafði verið með hita í nokkra daga og hafði ekki reynst hægt að hringja á sjúkrabíl, því það hafði alltaf verið á tali hjá Neyðarlínunni.

Klukkutíma eftir að hann dó kom sjúkrabíll en engar líkkistur voru til og skildu sjúkraflutningamenn manninn því eftir í herbergi hans þar til hægt var að finna kistu. Ættingjum hans var ekki hleypt inn til líksins til að undirbúa hann fyrir jarðarför.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×