Eðlilegt að Róbert fái þyngri dóm en ella 26. september 2007 16:47
Atli Gíslason, alþingismaður og lögmaður segir að með brotum sínum hafi Róbert Árni Hreiðarsson varpað skugga á heiður lögmannastéttarinnar. Hann segir mjög eðlilegt að Róbert Árni fái þyngri dóm en ella í ljósi þess að hann er lögmaður. Atli segir dóminn þó ekki of þungann, sérstaklega ef tekið er mið af þeim afleiðingum sem brot af þessu tagi hafa. „Mér finnst dómurinn ekki of þungur," segir Atli Gíslason. „Hann er fundinn sekur, afleiðingarnar eru svakalegar og miðað við það finnst mér hann ekki of þungur. Ég hefði þó ekki haldið fyrirfram að dómurinn yrði þetta þungur." Atli segir eðlilegt að Róbert fái þyngri dóm en ella vegna þess að hann er lögfræðingur. „Hann sem lögmaður á að gera sér betri grein fyrir eðli og afleiðingum gjörða sinna. En þetta er sem betur fer eina dæmið sem ég veit um á mínum 30 ára ferli að lögmaður hafi gerst sekur um brot af því tagi sem hér um ræðir." Róbert Árni var svipptur lögmannsréttindum sínum að kröfu saksóknara. Atli hafði áður en dómur féll gagnrýnt lögfræðingafélag Íslands fyrir að svipta hann ekki réttindum sínum tímabundið þangað til dómur félli. „Ég var raunar þeirrar skoðunnar að hann hefði sjálfur átt að leggja inn réttindi sín en þar sem hann gerði það ekki hefði stjórn félagsins að grípa inn í. Ég er því ósáttur við framgöngu stjórnar félagsins í þessu máli." Róbert Árni getur, að lokinni afplánun, sótt um að fá lögmannsréttindi sín aftur.
Mest lesið Linda Dröfn á lista BBC um 100 áhrifamestu konur heims Innlent Umboðsmaður Alþingis óskar svara frá Útlendingastofnun Innlent Mega ekki lengur leggja stund á hjúkrunar- og ljósmóðurfræði Erlent Stígarnir fá falleinkunn hjá hjólafólki Innlent Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Innlent Fagna þotunni sem markar tímamót í sögu Icelandair Innlent Niðurbrotin eftir synjun og segir afkomuótta blasa við næstu mánuði Innlent Leggja drög að ákæru á hendur forsetanum Erlent Afturkalla átta friðlýsingar Innlent Lítill arfur á barnsaldri dró dilk á eftir sér Innlent Fleiri fréttir Linda Dröfn á lista BBC um 100 áhrifamestu konur heims Umboðsmaður Alþingis óskar svara frá Útlendingastofnun Rifrildi, innbrot og eftirför Fjárhagsáætlun samþykkt eftir ellefu tíma umræður Fagna þotunni sem markar tímamót í sögu Icelandair Stígarnir fá falleinkunn hjá hjólafólki Gátu loksins mætt aftur í skólann sinn á Selfossi „Menn ætla sér alla leið með þetta“ Skæð fuglaflensa fannst í kalkúnum í Ölfusi Afturkalla átta friðlýsingar Niðurbrotin eftir synjun og segir afkomuótta blasa við næstu mánuði Valkyrjustjórn, afkomukvíði og jóladans í beinni Lítill arfur á barnsaldri dró dilk á eftir sér Hitasveifla upp á 23 gráður á innan við sólarhring Vilja selja öll bílastæðahús borgarinnar Ráðuneytum fækkað og ljóst hvar stóru verkefnin liggja Bæjarstjóraskipti á áætlun í Hafnarfirði Gleðitár á hvarmi Fúsa við verðlaunaafhendingu Jón Ingi dæmdur í sex ára fangelsi í Sólheimajökulsmálinu Hámarksbið eftir barnabótum verður fjórir mánuðir Virðist útiloka samstarf með Samfylkingu Blandar sér í baráttuna um rektorinn Ragnar Þór hættur hjá VR og Halla tekin við „Fullkomlega galin“ fjárhagsleg ákvörðun að vera rithöfundur á Íslandi Fréttin öll Sigríður Júlía verður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar „Ég er bara bjartsýnn“ Kristrún fær umboðið og boðar Ingu og Þorgerði á sinn fund Verði að virða það sem þjóðin vilji Umsóknir enn til meðferðar „á faglegum grunni“ Sjá meira