Myndbandsdómari rak leikmann af velli í hollensku bikarkeppninni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. september 2016 22:30
Anouar Kali, leikmaður Willem II, varð í gær þess vafasama heiðurs aðnjótandi að vera fyrsti leikmaðurinn í Hollandi sem er rekinn af velli af myndbandsdómara. Willem II sótti Ajax heim í hollensku bikarkeppninni í gær og átti erfitt uppdráttar. Staðan var 2-0 í hálfleik, Ajax í vil, og á síðustu 18 mínútum bættu heimamenn svo þremur mörkum við. Á þeim tíma voru þeir manni fleiri eftir að Kali fékk rauða spjaldið á 58. mínútu. Dómari leiksins, Danny Makkelie, byrjaði á að gefa Túnisanum gula spjaldið fyrir brot á Lasse Schöne, leikmanni Ajax. Nokkrum sekúndum síðar breyttist gult spjald í rautt eftir ábendingu frá myndbandsdómaranum Pol van Boekel sem sat í litlum sjónvarpsbíl með sex skjáum. Hann mat það sem svo að brot Kalis verðskuldaði rautt spjald og kom því áleiðis til Makkelie sem rak Túnisann út af. Þetta er í fyrsta sinn sem myndbandsdómari grípur inn í leik í Hollandi með þessum hætti. Makkelie og Van Boekel munu skipta um hlutverk í dag þegar Feyenoord tekur á móti Oss. Makkelie verður í sjónvarpsbílnum en Van Boekel úti á vellinum. Notkun myndbandsupptakna hefur aukist mikið að undanförnu en fyrr í þessum mánuði var hún t.d. notuð í vináttulandsleik Ítalíu og Þýskalands í Bari. Gianni Infantino, forseti FIFA, er mikill stuðningsmaður þess að tæknin sé notuð til að hjálpa dómurum. Hann var ánægður með hvernig til tókst í Bari og vill að myndbandsupptökur verði notaðar á HM 2018 í Rússlandi.
Fótbolti Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Wales 2-2 | Logi sem þarf að verða að báli Fótbolti Berglindi sagt upp í síma: „Kom mér mjög á óvart“ Íslenski boltinn Heiglar sem ráðast á vinalega Íslendinginn Fótbolti Byrjunarlið Íslands: Gylfi á bekknum og Orri og Andri Lucas frammi Fótbolti Ben Davies: Synd að hafa ekki spilað með Gylfa Fótbolti Kári sagði að Kolbeinn ætti að biðja um skiptingu í hálfleik Fótbolti Einkunnir Íslands gegn Wales: Varamaðurinn Logi maður leiksins eftir ótrúlega innkomu Fótbolti Bellamy: Jói lyklakippan en kann alveg að tuða Fótbolti „Andlega lúinn“ Jón Daði færist nær Bestu deildinni Íslenski boltinn Haaland að verða pabbi Fótbolti Fleiri fréttir „Við munum læra margt af þessu“ „Við hefðum átt að skora fleiri mörk í seinni hálfleik“ Van Dijk fékk rautt spjald í kvöld Hareide: „Við gerðum skelfileg mistök“ Logi í vímu eftir leik: Ég er vanur að skora góð mörk Einkunnir Íslands gegn Wales: Varamaðurinn Logi maður leiksins eftir ótrúlega innkomu Tyrkir á toppnum eftir stórsókn en nauman sigur Twitter um leikinn: Haltu bara áfram að skína Logi Kári sagði að Kolbeinn ætti að biðja um skiptingu í hálfleik Logi jafnar með tveimur mörkum á þremur mínútum: Sjáðu mörkin Agüero fór með Barcelona fyrir dómstóla Uppgjörið: Ísland - Wales 2-2 | Logi sem þarf að verða að báli Byrjunarlið Íslands: Gylfi á bekknum og Orri og Andri Lucas frammi „Ekki vera með ef þið eruð á móti þessu“ Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Heimir segist aldrei hafa fengið annan eins stuðning á útivelli Ben Davies: Synd að hafa ekki spilað með Gylfa „Andlega lúinn“ Jón Daði færist nær Bestu deildinni Saka fór meiddur út af „Draumur frá því ég var lítill“ Solskjær hafnaði Dönum Bellamy: Jói lyklakippan en kann alveg að tuða Vandasamt að greina velska liðið: „Við erum á betri stað núna“ Grikkir vildu ekki spila við Englendinga vegna fráfalls Baldocks Býst ekki við að landa starfinu stóra eftir óvænt tap Minnist Baldocks með hlýju: „Honum þótti alltaf vænt um Vestmannaeyjar“ Heiglar sem ráðast á vinalega Íslendinginn „Vonandi getum við nýtt okkur mína kunnáttu“ Berglindi sagt upp í síma: „Kom mér mjög á óvart“ Haaland að verða pabbi Sjá meira