Innlent

Vann flatskjá í vinaleik Vísis: „Alveg í skýjunum"

Guðrún Ósk Hansen tekur við vinningnum frá Einari Skúlasyni kynningarstjóra Vísis og Jóhanni Viðarssyni frá Sjónvarpsmiðstöðinni.
Guðrún Ósk Hansen tekur við vinningnum frá Einari Skúlasyni kynningarstjóra Vísis og Jóhanni Viðarssyni frá Sjónvarpsmiðstöðinni.
Guðrún Ósk Hansen, þriggja barna móðir í Vogum á Vatnsleysustönd, sat við tölvuna í gærkvöldi og var að tala við manninn sinn í Noregi á Skype þegar hún ákvað að gerast Facebook-vinur Vísis. Eiginmaður Guðrúnar starfar í Noregi þar sem hann fékk vinnu eftir atvinnuleysi hér á Íslandi. Guðrún Ósk er sjálf öryrki eftir alvarlegt bílslys og hafa þau hjónin því ekki haft mikið á milli handanna að undanförnu. Það kom henni því skemmtilega á óvart þegar hún fékk símtal þar sem henni var tilkynnt að hún hefði verið dregin út í Vinaleik Vísis og hreppt þar veglegan vinning.

Guðrún Ósk tók við vinningnum í Sjónvarpsmiðstöðinni fyrr í dag, 22" Panasonic Pure Line sjónvarpi með innbyggðri iPod vöggu. „Við áttum flatskjá en ekki svona flottan. Þetta er ekki leiðinlegur jólapakki," segir Guðrún Ósk í samtali við Vísi.

„Ég bara trúði honum ekki"

Hún fylltist í byrjun vantrú þegar Einar Skúlason, kynningarstjóri Vísis, hringdi og sagði henni frá vinningnum. „Ég bara trúði honum ekki," segir hún. Einari tókst þó að sannfæra Guðrúnu um að þetta væri ekkert grín. Hún fór því strax aftur á Skype og sagði eiginmanninum frá nýja sjónvarpinu. „Hann var alveg í skýjunum," segir hún.

Guðrún játar að efnahagshorfir og atvinnuástand hér á landi hafi orðið til þess að hún íhugar nú alvarlega að flytja út til eiginmannsins í Noregi. Hann hefur undanfarna mánuði komið heim mánaðarlega og hitt konu sína og dætur þeirra þrjár. Guðrún Ósk segir eiginmann sinn hafa sótt um aðra vinnu í Noregi og ef hann fær hana séu allar líkur á að hún flytji út með yngstu dóttur þeirra, sem er tólf ára. „Hún hlakkar bara til," segir Guðrún Ósk.

Eiginmaðurinn er brátt væntanlegur til að eyða jólahátíðinni með fjölskyldunni og segir Guðrún Ósk að það sé stór bónus að geta horft á jóladagskrána í nýja sjónvarpinu.

Vinaleikur Vísis heldur áfram og daglega eru dregnir út glæsilegir vinningar. Leiknum lýkur þann 20. desember næstkomandi þegar einn heppinn Facebook vinur Vísis vinnur glæsilegan Noka N8 farsíma.

Þeir sem vilja gerast vinir Vísis á Facebook geta gert það hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×