Menning

Kynjamyndir á Korpúlfsstöðum

Myndlistin ræður ríkjum á Korpúlfsstöðum og eru áhugasamir hvattir til að nýta tækifærið sem gefst nú í vikunni.
Myndlistin ræður ríkjum á Korpúlfsstöðum og eru áhugasamir hvattir til að nýta tækifærið sem gefst nú í vikunni. fréttablaðið/hörður

Hópur þrettán myndlistarmanna og hönnuða sem hafa vinnustofur sínar á Korpúlfsstöðum opna gáttir sínar þessa vikuna og bjóða listunnendum og öðrum forvitnum gestum að kíkja á verk sín. Hópurinn kennir sig við „KorpArt“.



Málarinn Erlingur Valgarðsson útskýrir að viðbrögð gesta á opnum degi hússins hinn 1. maí hafi verið afbragðsgóð og fullt út úr dyrum. Sjálfur hefur hann starfað á Korpúlfsstöðum síðan í september en flestir hinna þátttakendanna fluttu vinnustofur sínar þangað fyrir um þremur mánuðum eða um svipað leyti og Sjónlistamiðstöð var komið á laggirnar í þessu fyrrverandi stórbýli höfuðborgarinnar. Á opnum dögum sem þessum skapast iðulega líflegar umræður milli leik- og listamanna og einnig er hægt að gera góð kaup þegar verslað er beint við listafólkið.

 Erlingur segir margt að sjá á Korpúlfsstöðum. „Við notum einnig ganga hússins en þar er fólk byrjað að hengja upp; við nýtum húsið eins og kostur er.“ Hópurinn stefnir að því að hafa opinn dag á Korpúlfsstöðum fyrsta laugardag hvers mánaðar í framtíðinni.



Auk Erlings eru eftirtaldir listamenn í hópnum: Olga Dagmar, Hekla, Margrét Zophoniusardóttir, Edda Þórey, Jónína Margrét, Ninný, Æja, Örn Smári, Ólöf, Sólveig Dagmar, Laufey og Dura/xirena.

Vinnustofurnar verða opnar milli 12 og 16 til og með 29. júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.