Fótbolti

Inter lagði Milan í æsilegum leik

Zlatan Ibrahimovic fagnar hér marki sínu gegn AC Milan í gær
Zlatan Ibrahimovic fagnar hér marki sínu gegn AC Milan í gær NordicPhotos/GettyImages

Inter Milano lagði granna sína í AC Milan 4-3 í æsilegu uppgjöri erkifjendanna í ítölsku A-deildinni í gær. Crespo, Stankovic og Ibrahimovic komu Inter í 3-0 í upphafi síðari hálfleiks áður en Seedorf minnkaði muninn fyrir Inter. Materazzi kom þá Inter í 4-1 og var rekinn af velli fyrir fagnaðarlæti sín og í kjölfarið minnkuðu þeir Gilardino og Kaka muninn fyrir AC.

Inter er því í efsta sæti deildarinnar með 21 stig eftir 9 umferðir en Palermo er með 18 stig og á leik til góða. Roma er í þriðja sæti eftir 1-0 sigur á Udinese og hefur 17 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×