Lífið

Kristín Ey­steins­dóttir leik­stýrir kvik­mynd um Kokkál

Sylvía Hall skrifar
Dóri DNA, Kristín Eysteinsdóttir og Steinarr Logi Nesheim.
Dóri DNA, Kristín Eysteinsdóttir og Steinarr Logi Nesheim. Aðsend

Kristín Eysteindóttir mun leikstýra kvikmynd sem byggir á bókinni Kokkáll eftir Dóra DNA. Bókin kom út á síðasta ári en hún sló rækilega í gegn og sat til að mynda í fimmtánda sæti bóksölulistans fyrir síðasta ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu en Morgunblaðið greindi fyrst frá.

Í vikunni var greint frá því að Kristín hefði óskað eftir starfslokum hjá Borgarleikhúsinu einu og hálfu ári fyrr en áætlað var, en Kristín var ráðin Borgarleikhússtjóri árið 2014 og átti að vera í starfinu þangað til sumarið 2021. Brynhildur Guðjónsdóttir hefur verið ráðin Borgarleikhússstjóri og mun Kristín vinna með henni til þess að koma henni inn í starfið.

Sjá einnig: Kristín vill losna sem fyrst úr stóli Borgarleikhússtjóra

Í tölvupósti þar sem Kristín tilkynnti samstarfsfólki ákvörðun sína sagðist hún standa frammi fyrir því einstaka tækifæri að leikstýra kvikmynd. Verkefnið væri á byrjunarstigi en hana hefði alltaf dreymt um slíkt tækifæri.

Í fréttatilkynningu Kristín hafa heillast af bókinni strax við fyrsta lestur. Sagan væri sterk samtímasaga sem hentaði vel fyrir kvikmyndaformið. Hún setti sig í samband við Dóra sjálfan og segir hann það hafa verið augljóst að hún brann langmest fyrir verkefninu. Hún sjái bókina skýrt fyrir sér sem kvikmynd, jafnvel skýrara en hann sjálfur, og hann treysti hennar mati. Hann hafi lengi verið aðdáandi hennar og hann hafi mikla trú á henni.

„Ég ýmist grét eða hló þegar ég las hana og þessar vel skrifuðu og djúpu persónur voru mér ofarlega í huga löngu eftir að ég lauk við bókina. Þessar kraftmiklu persónur og kringumstæður henta mjög vel fyrir kvikmyndaformið,“ segir Kristín sem mun sjálf koma að þróun handritsins strax í upphafi. 

Framleiðslufyrirtækið Polarama mun framleiða myndina og verður nú hafist handa við að færa söguna yfir í kvikmyndaformið. Steinarr Logi Nesheim, framleiðandi myndarinnar, segist sannfærður um að sagan sé ekki bundin við reynsluheim Íslendinga og þau ætli sér að framleiða kvikmynd sem eigi heima á alþjóðamarkaði.


Tengdar fréttir

Kristín vill losna sem fyrst úr stóli Borgarleikhússtjóra

Kristín Eysteinsdóttir Borgarleikhússtjóri hefur óskað eftir starfslokum hjá Borgarleikhúsinu einu og hálfu ári áður en hennar vertíð í húsinu á að ljúka. Hún greinir samstarfsfólki sínu frá þessu í tölvupósti og segist vera að hlusta á hjartað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.