Innlent

Vinnumálastofnun nær ekki að greiða allt út á réttum tíma næstu mánaðamót

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofunar, var gestur upplýsingafundar almannavarna og landlæknis í dag.
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofunar, var gestur upplýsingafundar almannavarna og landlæknis í dag. Lögreglan

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir næstkomandi mánaðamót verði ekki hægt að greiða öllum sem eru í greiðsluþjónustu hjá stofnuninni á réttum tíma. Þetta kom fram í máli hennar á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis um kórónuveiruna hér á landi.

„Þetta eru örugglega önnur mánaðamótin í röð þar sem að, og ég ætla að biðja fólk um að virða það við okkur, það munu ekki allir fá greitt á réttum tíma. Það er bara þannig. Við náum því ekki,“ sagði Unnur.

Á fundinum í dag kom fram að nú væru rúmlega 53 þúsund manns í greiðsluþjónustu hjá stofnuninni. Þar af eru 18 þúsund í almenna kerfinu, þar af margir sem starfað hafa sjálfstætt. 35.600 manns hafa síðan sótt um greiðslur vegna minnkaðs starfshlutfalls.

„Við vinnum eins hratt og við mögulega getum og það fá allir greitt sem eiga rétt á því. Vonandi verða þetta ekki miklar tafir, en einhverjar verða þær.“

Þá sagði Unnur einnig að djúp kreppa væri fram undan en að birta myndi til þegar ferðaþjónusta landsins kæmist aftur á skrið. Það væri hennar trú að atvinnugreinin yrði fljót að byggja sig upp aftur, eins og dæmin sönnuðu. Nefndi hún þar áskoranir sem ferðaþjónustan hefur mætt í kjölfar náttúruhamfara hérlendis, sem og eftir árásirnar á Bandaríkin 11. september 2001.

Þá greindi Unnur frá því að verið sé að sögulegan fjölda af fólki inn en nýtt fólk þurfi tíma til að koma sér inn í málin og eftir tvær til þrjár vikur verði þjónustan farin að bera merki þessa liðsauka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×