Erlent

Umsvif Mossack Fonseca eru gríðarleg

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Teikning þýska dagblaðsins af þjóðarleiðtogum, núverandi og fyrrverandi, sem tengjast Panama-skjölunum.
Teikning þýska dagblaðsins af þjóðarleiðtogum, núverandi og fyrrverandi, sem tengjast Panama-skjölunum. Vísir/Süddeutsche Zeitung.
Lögmannsstofan Mossack Fonseca er miðpunktur stærsta gagnalekamáls sögunnar eftir að 11,5 milljón skjölum lögmannsstofunnar var lekið á netið. Lögmannsstofan á Panama sérhæfir sig í rekstri aflandsfélaga og var hulunni svipt af stofunni í umfangsmikilli fjölmiðlaumfjöllun í gær víða um heim. 

Stofan var stofnsett árið 1986 þegar Ramon Fonseca og Jürgen Mossack sameinuðu lögmannsstofur sínur. Fonseca er frá Panama og var þangað til í síðasta mánuði einn nánast ráðgjafi forseta Panama. Mossack er þýskur að uppruna en faðir hans var meðlimur í SS-sveitum nasista á tímum síðari heimstyrjaldarinnar.

Sjá einnig: Aflandsfélög og skattaskjól: Löglegt en siðlaust?

Lögmannstofa þeirra, Mossack Fonseca, sérhæfir sig í að stofna og reka aflandsfélög fyrir viðskiptavini sína í skattaskjólum á borð við Bresku Jómfrúaeyjunum. Er hún eitt stærsta og umfangsmesta fyrirtæki heimsins á sviði aflandsfélaga. Gögnin sýna að stofan hefur stofnað 300 þúsund aflandsfélög í skattaskjólum fyrir viðskiptavini sína, þar af um helming þeirra á Bresku Jómfrúareyjunum. Stofan er afar umfangsmikil í þessum viðskiptum og er hún fjórði stærsti veitandi aflandsfélaga í heiminum.

Hér fyrir neðan má sjá örstutt myndband þar sem ferli Mossack Fonseca er útskýrt. 

Með skrifstofur um allan heim

Þrátt fyrir að lögmannstofan sé staðsett í Panama er hún með skrifstofur og tengiliði víða um heim. Á vefsíðu stofunnar kemur fram að fyrir hana starfi um 600 manns í 42 ríkjum heimsins, þar á meðal í Sviss, Kýpur, Bresku Jómfrúareyjunum og á bresku eyjunum Guernsey, Jersey og Mön, þekktum skattaskjólum.

Í stað þess að hafa beint samband við viðskiptavini sína starfaði stofan í flestum tilvikum í gegnum tengiliði sína víða um heim, endurskoðendur, lögfræðinga og bankastarfsmenn sem störfuðu fyrst og fremst í Sviss, Bretlandi, Lúxembúrg, Bretlandi og bresku eyjunni Jersey.

Sjá einnig: Sigmundur Davíð einn af tólf þjóðarleiðtogum í Panama-skjölunum

Stofan og tengiliðir hennar selja aflandsfélög, oft á tíðum fyrir lítið fé. Viðskiptavinir geta keypt félag fyrir svo lítið sem þúsund dollara, um 122 þúsund krónur. Fyrir hærri þóknun býður stofan hinsvegar upp á að útvega gervi-stjórnarmann til þess að fela raunverulegt eignarhald félagsins. Úr verður aflandsfélag sem afar erfitt getur reynst fyrir skattayfirvöld að fá upplýsingar um.

Starfaði með stærstu fjármálastofnunum heimsins

Gögnin sýna að lögmannsstofan starfaði með mörgum af stærstu fjármálastofnunum heimsins á borð við Deutsche Bank, HSBC, Société Générale, Credit Suisse, UBS, og Commerzbank. Þá var Landsbankinn í Lúxemborg einn umsvifamesti viðskiptavinur Mossack Fonseca.

Það er vissulega ekki ólöglegt að eiga peninga í aflandsfélögum í skattaskjólum en það er hins vegar siðferðislegt álitamál hvort að það er í lagi að geyma fjármuni í slíkum félögum. Í grunninn eru skattaskjól svæði þar sem ekki eru greiddir tekjuskattar. Þá skiptir ekki máli hvaðan tekjurnar koma; þar sem og annars staðar í heiminum gildi sú regla að félög eru skattskyld í heimalandi sínu af öllum sínum tekjum.

Sjá einnig: Fjölmiðlar um heim allan fjalla um félag Sigmundar og Önnu

Lögmannsstofan sinnir þjónustu fyrir 240 þúsund fyrirtæki að sögn annars eigenda stofunnar og segir hann bróðurpartinn nýta þjónustuna lögum samkvæmt.

Umfjöllun gærkvöldsins bendir til þess að hluti þeirra sem nýti sér þjónustuna fari á svig við lög en kastljósið beindist ekki síst að Vladimír Pútín, forseta Rússlands, en Guardian fullyrti að skjölin sýndu fram á leynilega reikninga og lán til náinna vina Pútíns upp á tvo milljarða dollara, um 250 milljarða íslenskra króna.

Segir eigandi stofunnar að það sé ekki á ábyrgð hennar að tryggja að viðskiptavínir sínir fari eftir gildandi lögum.


Tengdar fréttir

Seldi Wintris fyrir einn bandaríkjadal

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra fékk úthlutað prókúru fyrir aflandsfélaginu Wintris Inc. þegar félagið var stofnað. Prókúran gerði honum kleift að skuldbinda félagið og meðhöndla eignir þess sem sínar eigin. Þá átti Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í viðskiptum með fasteignir í Dúbaí árið 2009 og notaði til þess tölvupóstfang sitt hjá Alþingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×