Munu ekki stöðva Breivik vilji hann svelta sig í hel Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. október 2015 16:19 Hryðjuverkamaðurinn Anders Breivik. vísir/epa
Norska fangelsismálastofnunin mun ekki koma í veg fyrir að norski hryðjuverkamaðurinn Anders Breivik svelti sig til bana kjósi hann að fara í hungurverkfall. Breivik hefur sagst búa við ómanneskjulegar aðstæður í Skien-fangelsinu og bæði hótað því að kæra Anders Anundsen, dómstólaráðherra Noregs, og svelta sig í hel. Í frétt Dagbladet kemur fram að Breivik verði leyft að svelta sig í hel en það er í samræmi við reglur fangelsins um að fangi eigi rétt á að ákveða örlög sín sjálfur án þess að heilbrigðisstarfsmenn grípi inn í. Þó verður fanginn að skilja fyllilega þær afleiðingar sem hunguverkfall geti haft í för með sér og er það í verkahring fangelsismálayfirvalda að koma Breivik í skilning um það. Þá þarf að halda honum upplýstum um heilsufar hans á meðan á hungurverkfallinu stendur. Fyrir um mánuði tóku nýjar reglur gildi í fangelsinu þar sem Breivik afplánar dóm sinn. Hann segist nú bara geta átt í samskiptum við starfsmenn fangelsisins í gegnum lúgu í klefa sínum. Þá sé honum haldið meira í einangrun og það svæði sem hann hefur mátt hreyfa sig hefur minnkað. Aðstæðurnar hafa leitt til að hann hefur neyðst til að hætta í námi, en hann hóf nám í stjórnmálafræði við Ósló-háskóla í haust. Í bréfi sem Breivik sendi norskum og sænskum fjölmiðlum segir hann að ef þessum nýju reglum verði ekki aftur breytt muni hann halda hungurverkfalli áfram þar til hann deyr. „Ég get ekki meira,“ segir Breivik.
Hryðjuverk í Útey Noregur Tengdar fréttir Breivik segist búa við ómanneskjulegar aðstæður og hótar hungurverkfalli Anders Behring Breivik segir að þær aðstæður sem hann býr við hafi leitt til að hann hefur neyðst til að hætta í námi. 30. september 2015 11:48 Mest lesið Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Erlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Fleiri fréttir Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Sjá meira
Breivik segist búa við ómanneskjulegar aðstæður og hótar hungurverkfalli Anders Behring Breivik segir að þær aðstæður sem hann býr við hafi leitt til að hann hefur neyðst til að hætta í námi. 30. september 2015 11:48