Fyrsta sýning Reykjavík Fashion Festival opnaði með bjölluhljóm, kórsöng og lifandi tónlist en saxófónninn ómaði um salinn áður en sviðsmynd af gamalli sveitakirkju lýsti upp sviðið. Bergþóra Guðnadóttir yfirhönnuður Farmers Market dró fram sveitasælustemningu með haustlínu sem bar yfirskriftina „Sunnudagur." Vörulínan innihélt bundna prjónakjóla, gallefni, háa sokka, ofin pils, poncho, tweed slá og margt fleira.
Í viðtali við Lífið sagði Bergþóra að hugmyndafræði Farmers Market byggist á sjálfbærni og uppistaðan í vörulínunni unnin úr náttúrulegum og endurnýjanlegum hráefnum.Hönnunin hennar væri innblásin af okkar norrænu rótum hrært saman við alls kyns áhrif sem við verðum fyrir frá tísku, sögu, mannlífi, listum og framtíðarpælingum.
Hápunktur sýningarinnar var þegar að fögur sveitabrúður í ullarkjól birtist með þremur litlum brúðarmeyjum allar klæddar í ljósa kjóla og prjónapeysur.
Tíska og hönnun