Menning

Efla sýnileika safna

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Elísabet Pétursdóttir. "Frumkvæðið kom frá söfnunum sjálfum og söfn um allt land taka þátt í deginum.“
Elísabet Pétursdóttir. "Frumkvæðið kom frá söfnunum sjálfum og söfn um allt land taka þátt í deginum.“ Vísir/Valli
„Safnadagurinn hefur verið haldinn í þessari mynd síðan 1997, en þetta byrjaði snemma á tíunda áratug síðustu aldar,“ segir Elísabet Pétursdóttir, verkefnastjóri hjá Félagi íslenskra safna og safnmanna, um tildrög Íslenska safnadagsins sem er á morgun.

„Frumkvæðið kom frá söfnunum sjálfum og söfn um allt land taka þátt í deginum. Þau eru ekki öll með sérstaka dagskrá í tilefni dagsins, þótt mörg þeirra séu það, heldur er verið að kynna það sem er að gerast í söfnum landsins núna.“



Markmiðið með deginum er að benda á mikilvægi faglegrar varðveislu og miðlunar sameiginlegra verðmæta þjóðarinnar og þá einstöku leið til lifandi þekkingaröflunar og skemmtunar sem finna má á söfnum. „Við erum alltaf að reyna að efla sýnileika íslenskra safna og koma því fjölbreytta starfi sem þar er unnið á framfæri,“ segir Elísabet. „Það er ókeypis aðgangur á langflestum stöðum, en mörg safnanna úti á landi hafa einfaldlega ekki bolmagn til þess. Sum safnanna eru líka með annan opnunartíma á morgun, en þetta er ekki eins og á safnanótt þegar opið er til miðnættis, það er rétt að undirstrika það til að forðast misskilning.“



Söfn um land allt taka þátt í deginum og bjóða þau mörg upp á sérstaka dagskrá í tilefni hans. Í Hafnarborg er fjölskylduleiðsögn, um sýninguna Ummerki sköpunar, þar sem listaverk frá ýmsum tímum eru skoðuð og skeggrædd með hjálp undarlegra eða mjög venjulegra hluta sem allir þekkja en tengja ekki endilega við listir. Í Þjóðminjasafni er leiðsögn um grunnsýningu safnsins og á Listasafni Einars Jónssonar býður starfsfólk safnsins gestum í samtal um valdar styttur á safninu – Tölum saman um stytturnar á safninu. Á Gljúfrasteini eru tónleikar, í Menningarmiðstöð Þingeyinga er aldarafmælissýning Héraðssambands Þingeyinga og farandsýning Þjóðminjasafnsins, Snertið ekki jörðina – leikir 10 ára barna. Í Norska húsinu í Stykkishólmi er sýningin Pixlaður tími – sjónrænt samtal við fortíðina og þjóðbúningahátíð – svo fátt eitt sé nefnt.

Dagskrána í heild má finna á safnmenn.is og safnabokin.is.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.