Körfubolti

Spoelstra búinn að framlengja við Miami

Erik Spoelstra.
Erik Spoelstra.
Allri óvissu um framtíð Erik Spoelstra, þjálfara Miami Heat, hefur verið eytt því hann er búinn að framlengja samning sinn við félagið.

Spoelstra átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við  Heat en nú er ljóst að hann fer ekkert á næstunni. Spoelstra var talsvert gagnrýndur í fyrra er hann reyndi að hafa hemil á stórstjörnum liðsins en á endanum var hann búinn að ávinna sér virðingu margra.

"Þetta er einn besti, ungi þjálfari deildarinnar og stór hluti af okkar fjölskyldu. Hann er fullkominn þjálfari fyrir þetta lið og við vildum ekki að annað lið myndi stela honum," sagði Pat Riley, forseti Heat, um hinn 41 árs gamla þjálfara.

Spoelstra hefur verið á mála hjá félaginu í 17 ár en hann byrjaði sem myndbandsmaður en hefur unnið sig upp alla leið á toppinn.

Spoelstra var einn af lægst launuðu þjálfurum deildarinnar með undir 2 milljónir dollara á ári en mun hækka nokkuð í launum núna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×