Sport

Liverpool-liðin mætast ekki

Liverpool-liðin, Liverpool og Everton, mætast ekki í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en dregið var í dag. Vinni Liverpool Kaunas frá Litháen mætir liðið sigurvegurum úr leik Tirana og CSKA Sofia en Everton mætir spænska liðinu Villarreal. Manchester United er líklega á leiðinni til Ungverjalands. Liverpool er enn ekki með tryggt sæti en liðið vann fyrri leik sinn gegn Kaunas frá Litháen 3-1 og ætti því að eiga farseðilinn í 3. umferðinni vísann. Væntanlegir mótherjar þeirra eru liðsmenn CSKA Sofia sem unnu fyrri leik í Tirana 0-2. Manchester United mætir sigurvegurum úr leikjum Hajduk Split frá Króatíu og  Debrecen frá Ungverjalandi en Debrecen vann fyrri leikinn á heimavelli 3-0. Everton fær örugglega erfiðasta verkefnið af ensku liðunum þremur því þeir fá að glíma við Diego Forlan og félögum í spænska liðinu Villarreal en liðið var eins og Everton í Englandi spútnikliðið á síðasta vetri. Villarreal endaði þá í þriðja sæti og komst í átta liða úrslit UEFA-bikarsins. Þriðja umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu: Basle 1893 - Werder Bremen Celtic eða Artmedia Bratislava - Partizan Belgrad eða FC Sheriff Shakhtar Donetsk - Internazionale Steaua Búkarest eða Shelbourne - Rosenborg Manchester United - Hajduk Split eða Debrecen Malmö eða Maccabi Haifa - Dynamo Kiev eða FC Thun Everton - Villarreal Liverpool eða Kaunas - CSKA Sofia eða Tirana Sporting Lisbon - Udinese Valerenga eða FC Haka - Club Brugges Rapid Vín eða F91 Dudelange - Lokomotiv Moskva eða Rabotnicki Kometal Anderlecht eða Neftchi - Slavia Prag Trabzonspor eða Anorthosis Famagusta - Glasgow Rangers Bröndby eða Dynamo Tbilisi - Ajax Real Betis - Monaco Wisla Krakow - Panathinaikos



Fleiri fréttir

Sjá meira


×