Pirringurinn meðal annars vegna óvenju langra umræðna sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 15. desember 2015 20:26
Nokkur ófriður hefur ríkt á Alþingi í annarri umræðu fjárlaga næsta árs, sem nú hefur tekið um sextíu klukkustundir. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, segir það meðal annars vegna óvenju langra umræðna. „Kannski fyrst og fremst einkennist það af löngum umræðum um fjárlögin, miklu lengri en við höfum vanist. Það setur auðvitað mikinn svip á þetta. Það hafa verið næturfundir, það var fundur síðastliðinn laugardag og á föstudagskvöldið. Allt er þetta óvanalegt. En líka er það óvanalegt að önnur umræða fjárlaga taki svona langan tíma,” sagði Einar í kvöldfréttum Stöðvar 2. Sjá einnig: Segir þinginu stjórnað af nátttröllum „Ég held það sé skilningur á því að að lokum þurfa menn að afgreiða fjárlögin, fjárlagatengd mál, tekjustofna, mál sem lúta að dagsetningum og öðru slíku. Um það hefur alltaf verið algengur skilningur í þinginu og ég á ekki von á því að það verði neitt öðruvísi núna. En þau mál að öðru leyti sem hafa verið undir eru ekkert það mörg,og miklu færri en ég hef séð.” Þá sagði hann ekki hægt að útiloka það að umræðunum verði framhaldið á milli jóla og nýárs. „Það er ekkert hægt að útiloka það á meðan það er óvissa um það hvenær annarri umræðu um fjárlög lýkur. En það eru allar forsendur fyrir því að við getum lokið þessu fyrir jól,” sagði Einar.Sjá einnig: „Mig langaði oft ekki í vinnuna“ Þingmenn hafa kvartað undan hver öðrum við forseta Alþingis. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, sagðist á þingi í dag nánast hafa þurft á áfallahjálp að halda vegna dónaskapar Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, á meðan hún sat við hliðina á honum á síðasta þingi. Jón fór í kjölfarið fram á að forsætisnefnd þingsins myndi rannsaka ummæli hennar. Þá sagði Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, ástandið í þinginu forystu þess til skammar og líkti forsetum þingsins við nátttröll.Viðtalið við Einar K. Guðfinnsson má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Tengdar fréttir „Mig langaði oft ekki í vinnuna því mér leið svo illa við hliðina á þessum manni“ Birgitta Jónsdóttir, þingkona Pírata, og Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, tókust á á þingi í morgun en sá síðarnefndi fór tvívegis fram á að forsætisnefnd rannsakaði ummæli Píratans. 15. desember 2015 11:25 Vilja bjölluna burt: „Fremur til óþurftar en gagns“ Þingmenn segjast fá í eyrun af klukknahljómi forseta Alþingis. 14. desember 2015 22:11 Þingstörfin í hnút og starfsáætlun Alþingis farin úr skorðum Ekki sér fyrir endann á þingstörfum. Þingi átti að ljúka síðastliðinn föstudag samkvæmt starfsáætlun þingsins og í gær voru fjárlög enn til umræðu. 15. desember 2015 07:00 Illugi segir orð Össurar um afsögn vegna RÚV hafa lítið vægi „Leitun er af ráðherra í stjórnmálasögu landsins sem hefur látið yfir sig ganga jafn mikið stefnubrot eins og hann gerði sem utanríkisráðherra,“ skrifar ráðherrann um málið á Facebook. 15. desember 2015 14:46 Ólína segir þinginu stjórnað af nátttröllum Ekki sér fyrir endan á taugastríði stjórnar og stjórnarandstöðu um störf Alþingis og lok annarrar umræðu um fjárlög næsta árs. 15. desember 2015 13:17 Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Pilturinn áfram bak við lás og slá Sjá meira
„Mig langaði oft ekki í vinnuna því mér leið svo illa við hliðina á þessum manni“ Birgitta Jónsdóttir, þingkona Pírata, og Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, tókust á á þingi í morgun en sá síðarnefndi fór tvívegis fram á að forsætisnefnd rannsakaði ummæli Píratans. 15. desember 2015 11:25
Vilja bjölluna burt: „Fremur til óþurftar en gagns“ Þingmenn segjast fá í eyrun af klukknahljómi forseta Alþingis. 14. desember 2015 22:11
Þingstörfin í hnút og starfsáætlun Alþingis farin úr skorðum Ekki sér fyrir endann á þingstörfum. Þingi átti að ljúka síðastliðinn föstudag samkvæmt starfsáætlun þingsins og í gær voru fjárlög enn til umræðu. 15. desember 2015 07:00
Illugi segir orð Össurar um afsögn vegna RÚV hafa lítið vægi „Leitun er af ráðherra í stjórnmálasögu landsins sem hefur látið yfir sig ganga jafn mikið stefnubrot eins og hann gerði sem utanríkisráðherra,“ skrifar ráðherrann um málið á Facebook. 15. desember 2015 14:46
Ólína segir þinginu stjórnað af nátttröllum Ekki sér fyrir endan á taugastríði stjórnar og stjórnarandstöðu um störf Alþingis og lok annarrar umræðu um fjárlög næsta árs. 15. desember 2015 13:17