Áætlanir um að Baugsmál verði tekið fyrir í Hæstarétti í maí 22. febrúar 2008 16:28 Gestu Jónsson ásamt skjótstæðingi sínum, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, við aðalmeðferð í Baugsmálinu í fyrra.
Áætlanir eru um að sá angi Baugsmálsins sem enn er fyrir dómstólum verði tekinn fyrir í Hæstarétti í maí. Ekki er þó búið að festa dagsetningu þar um. Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, segir að viðmiðanir séu um að taka málið fyrir í maí. Hann og Jakob Möller, verjandi Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, vinni nú að greinargerð vegna málsins sem skila eigi til Hæstaréttar í byrjun mars. Þá verði formlega tekin ákvörðun um málflutningsdag. Um er að ræða endurákæru sem settur saksóknari, Sigurður Tómas Magnússon, gaf út eftir að upprunalega Baugsmálinu var öllu vísað frá dómstólum. Alls er um að ræða 18 ákæruliði. Í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrra var Jón Ásgeir Jóhannesson sýknaður af langflestum ákæruliðum en þó dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild að útgáfu tilhæfulauss reiknings upp á 62 milljónir króna sem færður var í bækur Baugs. Þá var Tryggvi Jónsson dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir bókhaldsbrot og fjárdrátt með því að láta Baug greiða persónulegan kostnað sinn. Enn fremur var Jón Gerald Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélagi Baugsmanna, dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að aðstoða Jón Ásgeir og Tryggva við að gefa út hinn tilhæfulausa reikning.
Mest lesið „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Innlent „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Innlent Allt í rugli á Rauðahafi Erlent Von á allhvössum vindi og rigningu Veður Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Erlent Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Innlent Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu Erlent Reyndu að brjótast inn í hraðbanka Innlent Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Erlent Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Innlent Fleiri fréttir „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Ráðherra skoðar frekari girðingar á strandveiðar Rafmagnið komið í lag og verðbólgan eykst á ný „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Fá ekki áheyrn vegna stympinga kennara og nemanda Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Foreldrar eigi að byrja á því að setja sjálfum sér skjátíma „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Reyndu að brjótast inn í hraðbanka Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir „Við erum mjög háð rafmagninu“ Gyltur gjóta þrettán til sextán grísum í hverju goti Öryggi ógnað og refsingar fyrnist Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu Fólk eigi ekki að breyta sínu daglega lífi vegna frásagna af hópnauðgun Sambandsleysi í suðri og óviðunandi ástand í fangelsum Vilja láta rannsaka aðild flóttateymis í máli Oscars Fangelsi oft eina úrræðið Allt á áætlun en Spánarfarar beðnir um að fylgjast með Björn tekur við af Helga Ráðist að fólki við Breiðholtsskóla um hábjartan dag Um níutíu hælisleitendur setið í fangelsi síðustu mánuði fyrir brottvísun Kryfja mál Ásthildar Lóu fyrir opnum tjöldum Saka Ingu um metnaðarleysi eftir skipun flokksmanna í stjórn Engin hópnauðgun um páskana á borði lögreglu Nýtt met slegið í fjölda giftinga Benedikt telur undanbrögð útvarpsstjóra grátleg Vill þyngri refsingar fyrir alvarleg kynferðisbrot Tekur við sem framkvæmdastjóri Bergsins Headspace Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Sjá meira