Lífið

Young Dylan kom, sá og sigraði alla bestu körfuboltamenn heims

Stefán Árni Pálsson skrifar
Young Dylan er ungur drengur sem fékk að fara á Stjörnuleikinn í NBA-deildinni fyrir hönd spjallþáttastjórnandans Ellen DeGeneres.

Leikurinn fór fram í New Orleans og heppnaðist mjög vel. Dylan fékk meðal annars sérhannaða skó frá Stephen Curry og hitti öll átrúnaðargoðin sem hann fylgist með í hverri viku.

Dylan sló vægast sagt í gegn um síðustu helgi og sló á létta strengi með öllum bestu körfuboltamönnum í heiminum.

Hann rappaði síðan í þætti Ellen og salurinn trylltist eftir flutninginn. Ný stjarna er fædd. Hér að neðan má sjá afraksturinn.   






Fleiri fréttir

Sjá meira


×