Erlent

Aðstoðarmaður al-Zarqawis í haldi

Öryggissveitir Íraka hafa handsamað náinn aðstoðarmann hryðjuverkaleiðtogans Abu Musabs al-Zarqawis sem sagður er æðsti maður al-Qaida í landinu. Aðstoðarmaðurinn, Ghassan al-Rawi, hefur verið innsti koppur í búri í skipulagningu árása uppreisnarmanna í bænum Rawa í vesturhluta Íraks. Yfirmenn hersveita Bandaríkjamanna og Íraka segjast sífellt færast nær því að hafa hendur í hári Zarqawis en hann og samverkamenn leiðtogans hafa lýst mörgum mannskæðustu sprengjutilræðum í Írak á hendur sér frá því stríðið hófst fyrir tveimur árum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×