Erlent

Beyglaði bifreið þjófanna með göngustafnum

Eðli málsins samkvæmt brást kona á níræðisaldri afar illa við þegar tveir þjófar stálu veski af 82 ára gamalli vinkonu hennar á dögunum. Konan hrópaði á þjófana auk þess sem hún náði að beygla bifreið þeirra með göngustafnum sínum.

Atvikið átti sér stað í bænum New Castle í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum og segir talsmaður lögreglunnar að lögreglumenn hafi fundið þjófanna fáeinum klukkustundum eftir þjófnaðinn - og það fyrst og fremst út af dældunum á bifreiðinni. Beyglurnar á bifreiðinni fönguðu nefnilega athygli lögreglumanns í eftirlitsferð sem ákvað að grennslast fyrir um bifreiðina og eigendur hennar. Í framhaldinu handtóku lögreglumenn þjófana, karl og konu á þrítugsaldri. Þau hafa áður komist í kast við lögin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×