Fótbolti

Albert fór meiddur af velli eftir 28 mínútur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Albert liggur óvígur eftir í dag.
Albert liggur óvígur eftir í dag. vísir/getty
Albert Guðmundsson fór meiddur af velli eftir 28 mínútna leik í liði AZ Alkmaar er liðið mætti Heracles í hollensku úrvalsdeildinni í dag.

Albert fékk langþráð tækifæri í byrjunarliði AZ í dag en það gekk ekki vel fyrir landsliðsmanninn því hann meiddist snemma í leiknum.

Hann var svo að endingu studdur af velli af sjúkrateymi AZ. Spurning hvort að hann verði klár í landsleikina gegn Frakklandi og Albaníu 11. og 14. október.







AZ vann leikinn 2-0 en byrjun liðsins hefur verið ansi góð á leiktíðinni. Teun Koopmeiners kom AZ yfir af vítapunktinum á 55. mínútu og Calvin Stengs tvöfaldaði forystuna á 88. mínútu.

Liðið er í 3. sæti deildarinnar með nítján stig eftir fyrstu átta leikjunum. Góð byrjun Arne Slot með liðið.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×