Fæðingartíðnin í Kína ekki verið lægri frá því fyrir tíð kommúnismans Kjartan Kjartansson skrifar 17. janúar 2020 11:57 Kínverskur drengur að leik í Beijing. Fæðingartíðnin í fyrra var sú minnsta frá árinu 1949. Vísir/EPA
Börnum sem komu í heiminn í Kína árið 2019 fækkaði um 580.000 á milli ára og hefur fæðingartíðni í landinu ekki verið lægri frá því að kommúnisma var komið á þar fyrir rúmum sjötíu árum. Engu að síður fjölgaði landsmönnum vegna lækkandi dánartíðni og eru þeir nú um 1,4 milljarðar talsins. Hagstofa Kína segir að 14,6 milljónir barna hafi fæðst í fyrra og var fæðingartíðnin 10,48 börn á þúsund íbúa. Hlutfallið hefur ekki verið lægra frá árinu 1949, fyrir stofnun alþýðulýðveldisins. Til samanburðar telur Alþjóðabankinn að fæðingartíðni á heimsvísu hafi verið 18,65 börn á þúsund íbúa árið 2017. Fæðingartíðnin í Kína er lægri en í Bandaríkjunum þar sem hún var tólf börn á þúsund íbúa árið 2017 en hærri en í Japan þar sem aðeins átta börn fæðast á hverja þúsund íbúa. Breska ríkisútvarpið BBC segir að fæðingartíðni hafi farið hnignandi í Kína undanfarin ár þrátt fyrir að slakað hafi verið á reglum sem kveða á um að pör megi aðeins eignast eitt barn. Líkt og á vesturlöndum hafa því vaknað áhyggjur af svonefndri „lýðfræðitímasprengju“ í Kína þar sem sífellt færri eru hlutfallslega á vinnualdri og þurfa að sjá fyrir stækkandi hópi fólks á eftirlaunum. Frá árinu 2015 hafa pör mátt eignast tvö börn en engu að síður er viðvarandi ójafnvægi á milli kynjanna í Kína. Karlar voru þannig um þrjátíu milljónum fleiri en konur í fyrra. Sérfræðingar segja að tilslökuninni hafi ekki fylgt aðrar aðgerðir til að hjálpa barnafjölskyldum. Flest pör hafi því aðeins efni á því að eignast eitt barn.
Kína Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Fleiri fréttir Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Sjá meira