Erlent

21 lögreglumaður drepinn

Að minnsta kosti tuttugu og einn lögreglumaður var skotinn til bana í árás írakskra andspyrnumanna á lögreglustöð í Haditha sem er 200 kílómetra vestur af Bagdad. Lögregla segir að andspyrnumenn hafi stormað inn, afvopnað lögreglumennina, raðað þeim upp og myrt. Andspyrnumenn líta á lögregluna sem samherja Bandaríkjamanna og því verður hún oft fyrir árásum. Mikill órói er á svæðinu og átök þar sem við borgirnar Fallujah og Ramadí, sem eru í sama héraði, bíður fjöldi bandarískra og írakskra hersveita eftir að gera innrárs. Yfirlýst markmið er að gera út af við andspyrnumenn í borgunum fyrir fullt og allt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×