Innlent

200 menntaskólanemar strandaglópar - fyrsti skóladagur á morgun

Valur Grettisson skrifar
Nemendaráð MR. Á myndinni eru f.v. Ólafur Kári, Aldís Mjöll, Birna Ketilsdóttir, Inspector Scholae, Rakel Björk og Jón Ingvar en öll sitja þau í stjórn Skólafélags Menntaskólans í Reykjavík.
Nemendaráð MR. Á myndinni eru f.v. Ólafur Kári, Aldís Mjöll, Birna Ketilsdóttir, Inspector Scholae, Rakel Björk og Jón Ingvar en öll sitja þau í stjórn Skólafélags Menntaskólans í Reykjavík.
„Fyrsti skóladagurinn er á morgun, og þá mun vanta heilan árgang,“ segir Birna Ketilsdóttir, Inspector scholae hjá Menntaskólanum í Reykjavík, en hún er ein af 200 nemendum sem eru strandaglópar á grísku eyjunni Krít eftir tíu daga ferð útskriftarárgangs skólans.

Flugvél á vegum Heimsferða bilaði með þeim afleiðingum að nemendurnir þurfa að dvelja aðra nótt í Grikklandi. Þau fengu fregnirnar eftir að þau skráðu sig í flugið í dag.

„Við fengum fyrst að vita það eftir að við tjékkuðum okkur út af hótelinu að það væri fjögurra tíma seinkun á fluginu, svo sex tíma seinkun. Nú er ljóst að við fljúgum ekki heim fyrr en á morgun,“ segir Birna sem bætir við að nemendurnir muni líklega fara aftur á sama hótel og þau gistu á í fríinu. Þau mega þó búast við því að vera fleiri í herbergi í ljósi þess að búið er að bóka einhver herbergi.

„Þetta er svolítið óþægilegt,“ segir Birna sem er samt jákvæð. Hún bendir þó á að seinkunin hafi farið illa í suma foreldra, auk þess sem það verður léleg mæting á fyrsta skóladeginum í Menntaskólanum í Reykjavík á morgun.

„En við erum samt búin að láta skólann vita,“ segir hún. Aðspurð um kostnað vegna aukadagsins svarar Birna því að hún viti ekki betur en að samkvæmt neytendalögum þurfi ferðaskrifstofan að standa straum af stærstum kostnaði vegna gistingar og uppihalds.

„Annars erum við bara á leiðinni niður i bæ, og sjáum til hvernig það spilast úr þessu,“ segir hún bjartsýn að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×