Sport

Stúlknalandsliðið tapaði

Íslenska landsliðið skipað stúlkum 21 árs og yngri tapaði í gær fyrir Þjóðverjum 4-1 á opna Norðurlandamótinu sem fer fram í Svíþjóð. Þýsku stúlkurnar skoruðu fyrsta markið en Margrét Lára Viðarsdóttir úr Val jafnaði metin 1-1. Þjóðverjar sem eru með eitt besta landslið í þessum árgangi skoruðu 3 sinnum áður en yfir lauk. Íslendingar hafa tapað 2 fyrstu leikjunum, gegn Bandaríkjunum og nú þýskalandi. Stúlkurnar mæta Dönum í lokaleik B riðilisins á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×