Innlent

Fylgi Sjálf­stæðis­flokks mælist rúm 24 prósent

Atli Ísleifsson skrifar
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra er formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra er formaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,4 prósent, tæplega þremur prósentustigum lægra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var undir lok nóvember 2020.

Í frétt á vef MMR segir að fylgi Samfylkingarinnar hafi aukist um tæp tvö prósentustig milli mælinga og verið 15,6 prósent en fylgi Pírata lækkað um tæp tvö prósentustig og mældist nú 12,3 prósent.

„Fylgi Vinstri grænna jókst um rúmlega þrjú prósentustig og mældist nú 10,9%, fylgi Framsóknarflokksins jókst um eitt og hálft prósentustig og mældist nú 9,1% og fylgi Miðflokksins jókst um tæp tvö prósentustig og mældist nú 8,6%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 50,9% og jókst um tæpt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 50,0%.

  • Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,4% og mældist 27,1% í síðustu könnun.
  • Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 15,6% og mældist 13,8% í síðustu könnun.
  • Fylgi Pírata mældist nú 12,3% og mældist 13,8% í síðustu könnun.
  • Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,9% og mældist 7,6% í síðustu könnun.
  • Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 9,1% og mældist 7,6% í síðustu könnun.
  • Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,8% og mældist 9,5% í síðustu könnun.
  • Fylgi Miðflokksins mældist nú 8,6% og mældist 7,0% í síðustu könnun.
  • Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,9% og mældist 6,2% í síðustu könnun.
  • Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,4% og mældist 5,0% í síðustu könnun.
  • Stuðningur við aðra mældist 1,0% samanlagt.“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×