Innlent

Lögreglan leitar manns

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögreglan leitar þesa manns.
Lögreglan leitar þesa manns.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd. Er það vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu.

Í yfirlýsingu frá lögreglunni er maðurinn beðinn um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000.

Þeir sem þekkja til mannsins eða vita hvar hann sé að finna eru sömuleiðis beðnir um að hringja í lögregluna. Upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×