Stefán: Slakar æfingar hjá mér í vikunni Ester Ósk Árnadóttir skrifar 30. janúar 2021 18:26 Stefán Arnarson, þjálfari Fram. VÍSIR/HAG „Við bjuggumst við erfiðum leik, þær eru með gott lið en ég er mjög svekktur hvernig við spiluðum leikinn en ég ætla ekki að taka neitt af KA/Þór,“ sagði Stefán Arnarson, þjálfari Fram, eftir tapið gegn KA/Þór í Olís deild kvenna fyrr í dag. „
Við spilum fína vörn fyrstu 15 mínúturnar en við erum með 12 tapaða bolta í fyrri hálfleik og af fyrstu átta mörkum KA/Þór koma fjögur af þeim úr hraðaupphlaupi. Við erum bara að rétta þeim boltann og við náðum aldrei að minnka þann mun nægilega.“ „Útskýringarnar á þessum töpuðu boltum er að það eru búnar að vera slakar æfingar hjá mér í vikunni.“ Það vantaði lykilpósta í lið Fram en Stefán segir það enga afsökun. „Það er enginn afsökun þótt það vanti Stellu, Hildi og Steinunni. Það eru öll lið að missa einhverja leikmenn og við eigum að geta gert miklu betur en þetta. Ég er búinn að vera þjálfari Fram í held ég sjö ár og ég held að þetta sé svona þriðja lélegasta frammistaðan hjá okkur á þeim árum.“ „Ég ætla að taka það fram að ég er ekki að taka neitt af KA/Þór, þær voru mjög flottar en okkar leikur, sóknarleikur, varnarleikur, hraðaupphlaup, hverjir hlupu til baka og tapaðir boltar, allt brást. Langt síðan við höfum átt svona marga þætti sem voru lélegir í leiknum.“ „Ég trúi ekki öðru en að við komum til baka á móti Stjörunni. Ef ekki þá bara þekki ég ekki mína leikmenn rétt.“
Olís-deild kvenna Fram Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira