Þyrla Landhelgisgæslunnar sem var í æfingarflugi sinnti útkallinu og var maðurinn fluttur til aðhlynningar á bráðadeild Landspítala. Ekki vitað frekar um meiðsl.
Skömmu eftir miðnætti var tilkynnt um búðarhnupl í hverfi 109 í Reykjavík. Voru afskipti þar höfð af manni sem grunaður er um þjófnað á kjöti. Maðurinn hafði komið á vettvang í leigubíl sem hann gat ekki greitt fyrir.
Þá segir frá því að á öðrum tímanum í nótt hafi maður í mjög annarlegu ástandi verið handtekinn í hverfi 116. Hann gat ekki gert grein fyrir sér og hafði engin skilríki og var hann því vistaður í fangageymslu lögreglu.