Fótbolti

Stór hópur nýliða í fyrsta landsliðshópi Þorsteins

Sindri Sverrisson skrifar
Valur á flesta fulltrúa í landsliðshópnum eða níu talsins. Þar á meðal er Elín Metta Jensen sem er reynslumesti leikmaður hópsins ef horft er til landsleikjafjölda.
Valur á flesta fulltrúa í landsliðshópnum eða níu talsins. Þar á meðal er Elín Metta Jensen sem er reynslumesti leikmaður hópsins ef horft er til landsleikjafjölda. vísir/vilhelm

Mikill fjöldi nýliða fær tækifæri til að sýna sig og sanna í fyrsta landsliðshópnum sem Þorsteinn Halldórsson hefur valið sem þjálfari kvennalandsliðsins í fótbolta. Í hópnum eru aðeins leikmenn sem spila með íslenskum liðum.

Í gær varð ljóst að landsliðið færi ekki á fyrirhugað æfingamót í Frakklandi þar sem til stóð að mæta heimakonum, Noregi og Sviss. Ákvörðunin um að hætta við mótið var tekin vegna kórónuveirufaraldursins.

Þess í stað hefur Þorsteinn nú valið 26 leikmenn til æfinga hér á landi í næstu viku, eða dagana 16.-19. febrúar, í Kórnum í Kópavogi. Leikmönnum í atvinnumennsku hefur fjölgað talsvert í vetur og það gefur öðrum tækifæri.

Af þessum 26 leikmönnum eru 16 sem ekki hafa spilað A-landsleik. Elín Metta Jensen er reynslumest með 54 leiki og önnur tveggja leikmanna í hópnum, ásamt Öglu Maríu Albertsdóttur, sem skorað hefur mark í A-landsleik. Elín Metta hefur raunar skorað 16 og Agla María tvö.

Valur á flesta fulltrúa í hópnum eða níu talsins. Breiðablik á fimm, Fylkir þrjá, Selfoss þrjá, Þróttur R. tvo, og Keflavík, Þór/KA og Tindastóll einn hvert.

Leikmannahópurinn:

  • Sandra Sigurðardóttir | Valur | 34 leikir
  • Cecilía Rán Rúnarsdóttir | Fylkir | 1 leikur
  • Telma Ívarsdóttir | Breiðablik
  • Kristín Dís Árnadóttir | Breiðablik
  • Barbára Sól Gísladóttir | Selfoss | 2 leikir
  • Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir | Breiðablik | 2 leikir
  • Hildur Þóra Hákonardóttir | Breiðablik
  • Elísa Viðarsdóttir | Valur | 38 leikir
  • Katla María Þórðardóttir | Valur
  • Sóley María Steinarsdóttir | Þróttur R.
  • Natasha Moraa Anasi | Keflavík | 2 leikir
  • Laufey Harpa Halldórsdóttir | Tindastóll
  • Málfríður Anna Eiríksdóttir | Valur
  • Sigríður Lára Garðarsdóttir | Valur | 20 leikir
  • Karitas Tómasdóttir | Selfoss
  • Andrea Mist Pálsdóttir | FH | 3 leikir
  • Ásdís Karen Halldórsdóttir | Valur
  • Þórdís Elva Ágústsdóttir | Fylkir
  • Álfhildur Rósa Kjartansdóttir | Þróttur R.
  • Anna Rakel Pétursdóttir | Valur
  • Stefánia Ragnarsdóttir | Fylkir
  • Agla María Albertsdóttir | Breiðablik | 33 leikir, 2 mörk
  • Diljá Ýr Zomers | Valur
  • Elín Metta Jensen | Valur | 54 leikir, 16 mörk
  • Karen María Sigurgeirsdóttir | Þór/KA
  • Magdalena Anna Reimus | Selfoss



Fleiri fréttir

Sjá meira


×