Innlent

Felur þremur stjórnar­þing­mönnum að „sætta ólík sjónar­mið“ um Rúv

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Lilja Alfreðdsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur falið þremur fulltrúum ríkisstjórnarflokkanna að gera tillögur að breytingum á lögum um Ríkisútvarpið í þeirri von að „sætta ólík sjónarmið um starfsemi og hlutverk Ríkisútvarpsins.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu en í hópnum sitja þingmennirnir Kolbeinn Óttarsson Proppé fyrir hönd VG, Silja Dögg Gunnarsdóttir fyrir hönd Framsóknarflokks og Páll Magnússon fyrir hönd Sjálfstæðisflokks.

„Mál þessi hafa verið mikið til umfjöllunar í samfélaginu og á Alþingi, meðal annars í tengslum við frumvarp ráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla og þau sjónarmið að umsvif Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði valdi samkeppnisskekkju sem eigi sinn þátt í bágri rekstrarstöðu einkarekinna miðla hér á landi,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Lilja Alfreðsdóttir hefur um hríð reynt að ná í gegn frumvarpi um stuðning við einkarekna fjölmiðla og var frumvarpi þess efnis, í nýrri mynd, síðast dreift á Alþingi í lok nóvember. Hefur frumvarpið farið í gegnum eina umræðu í þinginu og situr nú hjá allsherjar- og menntamálanefnd þar sem Páll Magnússon fer með formennsku.

Meðal þess sem fulltrúunum þremur verður falið er að rýna í núverandi skilgreiningu á hlutverki Rúv og meta hvort þörf sé á að endurskilgreina hlutverk stofnunarinnar. Þá verði lagt mat á það hvernig Rúv geti best sinnt öryggishlutverki sínu og rýnt í gildandi kröfur og reglur um dreifikerfi Ríkisútvarpsins svo fátt eitt sé nefnt. Þá verður fulltrúunum einnig falið að meta hvernig fjármögnun Rúv verði best komið, það er hvort núverandi fyrirkomulag skuli halda áfram eða hvort breytinga sé þörf.

Ráðgert er að fulltrúarnir ljúki störfum eigi síðar en 31. mars næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×