Tvö ár af þremur eru skilorðsbundin. Samkvæmt frétt France24 er ólíklegt að Sarkozy muni sitja í fangelsi vegna dómsins. Það gerist sjaldan í Frakklandi nema fangar séu dæmdir til minnst tveggja ára fangelsisvistar.
Forsetinn fyrrverandi á rétt á því að biðja um að afplána dóm sinn í stofufangelsi.
Auk Sarkozy fengu lögmaðurinn Thierry Herzog og dómarinn Gilbert Azibert sama dóm. Sarkozy og Herzog voru fundnir sekir um að að múta Azibert, sem sendi þeim upplýsingar um rannsókn á greiðslum sem framboðs Sarkozy fékk frá hinni auðugu Liliane Bettencourt, erfingja franska L'Oréal veldisins.
Málið byggði á upptökum af samtölum Sarkozy og Herzog. Á einni upptöku sagðist Sarkozy ætla að útvega Azibert starf í Mónakó, sem hann gerði að vísu aldrei. Frönsk lög gera samt ekki greinarmun á tilraun til mútugreiðslna og mútugreiðslum.
Sarkozy, sem var forseti frá 2007 til 2012, hefur þvertekið fyrir ásakanirnar og segist vera fórnarlamb nornaveiða saksóknara, samkvæmt frétt fréttaveitunnar Reuters. Hann hefur tíu daga til að áfrýja niðurstöðunni.
Sarkozy er annar fyrrverandi forseti Frakklands sem er dæmdur fyrir spillingu á undanförnum árum. Jacques Chirac var dæmdur árið 2011.
Rannsókn leiddi að endingu í ljós að Sarkozy hefði ekki brotið lög varðandi greiðslurnar frá Bettencourt. Hann er þó enn til rannsóknar vegna greiðslna sem hann er sakður um að hafa þegið frá Muamma Gaddafí, fyrrverandi einræðisherra Líbíu.