Löw velur 17 og 18 ára stráka fyrir Íslandsleikinn Sindri Sverrisson skrifar 17. mars 2021 12:01 Jamal Musiala fagnar marki sínu gegn Lazio á dögunum. Getty/Tullio Puglia Joachim Löw tilkynnir á föstudaginn þýska landsliðshópinn sem mætir meðal annars Íslandi, á fimmtudaginn eftir viku, í undankeppni HM í fótbolta karla. Tveir ungir nýliðar verða í hópnum.
Löw viðurkenndi í viðtali við RTL að hann gerði ráð fyrir að velja þá Jamal Musiala úr Bayern München og Florian Wirtz úr Leverkusen. Musiala er 18 ára og hefur stigið sín fyrstu skref með Bayern í vetur, bæði í þýsku deildinni og Meistaradeildinni. Hann lék með U21-landsliði Englands en hefur ákveðið að spila fyrir A-landslið Þýskalands, meðal annars fyrir tilstilli Löws. Musiala skoraði meðal annars eitt marka Bayern í 4-1 sigrinum á Lazio í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Liðin mætast aftur í kvöld. Klippa: Musiala skorar gegn Lazio Valið á Wirtz kemur meira á óvart en hann er aðeins 17 ára og nýbyrjaður að spila aftur eftir að hafa sýkst af Covid-19. Hann hefur skorað fjögur mörk í 21 leik í þýsku deildinni í vetur og tvö mörk í Evrópudeildinni. Florian Wirtz gæti spilað sinn fyrsta landsleik gegn Íslandi.Getty/Lars Baron Löw sagðist gjarnan vilja sjá leikmennina ungu í þýska hópnum með tilliti til Evrópumótsins í sumar. Eins og gefur að skilja hefðu þeir báðir getað farið með U21-landsliði Þjóðverja á EM í næstu viku hefði kallið ekki komið frá Löw. Gamla þríeykið snýr ekki aftur Löw ætlar ekki að velja þá Thomas Müller, Mats Hummels og Jerome Boateng, sem hann ákvað fyrir tveimur árum að hætta að nýta í landsliðinu. Löw útilokar hins vegar ekki að þeir fari með á EM í sumar en sagði það óþarfa núna þar sem að þeir þekktu allt sem við kæmi landsliðinu. Þýskir miðlar segja allar líkur á því að Þjóðverjar verði án þeirra leikmanna sem spila í Englandi, vegna sóttvarnareglna, en það myndi sömuleiðis þýða að Ísland yrði án Gylfa Þórs Sigurðssonar, Jóhanns Bergs Guðmundssonar, Rúnars Alex Rúnarssonar og Jóns Daða Böðvarssonar. Þjóðverjar yrðu án Ilkay Gündogan, Timo Werner, Kai Havertz, Antonio Rüdiger og Bernd Leno. Arnar Þór Viðarsson tilkynnir íslenska landsliðshópinn á blaðamannafundi í dag kl. 13.15. Bein lýsing verður frá fundinum hér á Vísi.
HM 2022 í Katar Tengdar fréttir Löw óttast um stjörnuleikmenn en áfallið yrði meira fyrir Ísland Besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í janúar og febrúar, Ilkay Gündogan, gæti misst af leik Þýskalands við Ísland eftir níu daga líkt og fleiri leikmenn sem spila í Englandi. 16. mars 2021 08:02 Alfreð ekki með í næsta landsliðsverkefni Alfreð Finnbogason verður ekki með íslenska landsliðinu er undankeppni HM 2022 fer af stað síðar í mánuðinum. Þetta staðfesti hann í viðtali á vef þýska knattspyrnusambandsins. 16. mars 2021 17:21 Stóru spurningarnar sem Arnar, Lars og Eiður Smári munu svara í vikunni Fyrsti landsliðshópur Arnars Þórs Viðarssonar mun svala forvitni margra sem hafa verið að pæla í því hvaða stefnu hann ætlar að taka nú þegar gullaldarlið Íslands er að hefja endasprett sinn í landsliðsbúningnum. Vísir skoðaði nokkrar spurningar sem brenna á fótboltaáhugafólki við þessi tímamót. 16. mars 2021 10:01 Leikurinn hugsanlega færður eða Íslandi sagt að taka högginu Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson eru á meðal þeirra sem að óvíst er að spili gegn Þýskalandi, og svo Armeníu og Liechtenstein, í fyrstu leikjunum í undankeppni HM karla í fótbolta. 4. mars 2021 12:30 Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Sveindís Jane og Sædís Rún í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Sjá meira
Löw óttast um stjörnuleikmenn en áfallið yrði meira fyrir Ísland Besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í janúar og febrúar, Ilkay Gündogan, gæti misst af leik Þýskalands við Ísland eftir níu daga líkt og fleiri leikmenn sem spila í Englandi. 16. mars 2021 08:02
Alfreð ekki með í næsta landsliðsverkefni Alfreð Finnbogason verður ekki með íslenska landsliðinu er undankeppni HM 2022 fer af stað síðar í mánuðinum. Þetta staðfesti hann í viðtali á vef þýska knattspyrnusambandsins. 16. mars 2021 17:21
Stóru spurningarnar sem Arnar, Lars og Eiður Smári munu svara í vikunni Fyrsti landsliðshópur Arnars Þórs Viðarssonar mun svala forvitni margra sem hafa verið að pæla í því hvaða stefnu hann ætlar að taka nú þegar gullaldarlið Íslands er að hefja endasprett sinn í landsliðsbúningnum. Vísir skoðaði nokkrar spurningar sem brenna á fótboltaáhugafólki við þessi tímamót. 16. mars 2021 10:01
Leikurinn hugsanlega færður eða Íslandi sagt að taka högginu Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson eru á meðal þeirra sem að óvíst er að spili gegn Þýskalandi, og svo Armeníu og Liechtenstein, í fyrstu leikjunum í undankeppni HM karla í fótbolta. 4. mars 2021 12:30