Atlético er 1-0 undir í einvígi sínu við Chelsea eftir að Olivier Giroud skoraði eina mark leiksins þegar liðin mættust í Búkarest. Heimaleikur Atlético fór þar fram vegna sóttvarnareglna en í kvöld eigast liðin við í Lundúnum.
Simeone er enn við stjórnvölinn hjá Atlético líkt og árið 2014 en aðeins Koke kemur til með að spila leikinn sjálfan, eins og í 3-1 sigrinum á Brúnni það ár. Liðin höfðu gert markalaust jafntefli á Spáni en Simeone og hans menn fögnuðu ákaft eftir að hafa slegið út lærisveina Jose Mourinho og tryggt sér sæti í úrslitaleiknum. Svipmyndir úr leiknum má sjá í greininni hér að neðan.
Það má því kannski segja að Simeone þekki uppskriftina að því að vinna Chelsea í útsláttarkeppni á Brúnni en nú þarf hann að eiga við Thomas Tuchel. Undir stjórn Þjóðverjans hefur Chelsea, sem verður án Jorginho og Mason Mount í kvöld vegna leikbanns, ekki enn tapað leik og aðeins fengið á sig tvö mörk í tólf leikjum.
Reikna má með því að Luis Suárez og Joao Félix fái það hlutskipti öðrum fremur að brjóta þennan múr Chelsea í kvöld. Takist þeim það er aldrei að vita nema að mæður þeirra fái þakkarskeyti frá Simeone.

Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.