Sport

Sirkusæfing hjá Anníe Mist: Klæddi sig úr á hvolfi og án þess að nota hendurnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir tekur upp á ýmsu í vikulegum áskorunum sínum.
Anníe Mist Þórisdóttir tekur upp á ýmsu í vikulegum áskorunum sínum. Instagram/@anniethorisdottir

Anníe Mist Þórisdóttir bauð upp á óvenjulega áskorun fyrir fylgjendur sínar í vikunni. „Þessi er aðeins öðruvísi,“ skrifaði Anníe Mist og það er hægt að taka undir það.

Anníe Mist skorar á fylgjendur sína í hverri viku með að láta þá fá æfingu sem þau eiga að gera.

Í þessari viku, fyrstu vikunni eftir krefjandi fyrsta hluta af The Open, þá fór íslenska CrossFit goðsögnin aðeins aðra leið.

Anníe Mist grínaðist líka með að einhverjir sniðugir ættu að beina þessu á einhvern vin sinn sem gengur um í þröngum buxum.

Anníe Mist var í léttum joggingbuxum en æfingin yrði talsvert erfiðari væri viðkomandi í gallabuxum eða öðrum þrengri buxum.

Fyrir lengra koma þá áttu þeir líka að fara í buxurnar aftur. Anníe Mist sýndi bæði og fór létt með það. Það má sjá æfinguna hjá henni hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×