Þar segir að starfsmennirnir hafi sótt reglubundna fræðslu í tengslum við starfsþjálfun utan spítalans. Samkvæmt heimildum Vísis fór fræðslan fram hjá Mími en starfsmennirnir voru ekki í „snertingu“ við þann sem greindist í gær.
„Þeir starfsmenn sem eru fullbólusettir eða hafa fengið COVID-19 fara í skimun og mótefnamælingu. Þeir verða boðaðir á COVID-19 göngudeildina í Birkiborg og eiga að vera í úrvinnslusóttkví þar til neikvæðar niðurstöður hafa borist úr báðum prófum,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir einnig að hálfbólusettir og óbólusettir starfsmenn verði boðaðir í skimun hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandsbraut 34 á föstudaginn.
„Þessir starfsmenn eru í sóttkví frá og með nú og verða boðaðir í seinni sýnatöku þegar 7 dagar eru liðnir frá útsetningu. Ef síðara sýni reynist neikvætt getur yfirmaður sótt um sóttkví C fyrir starfsmenn sem gildir í 14 daga frá útsetningu.“
Áríðandi frá farsóttanefnd Landspítala vegna COVID-19 smit sem greindist 17. mars utan sóttkvíar: Vegna COVID-19 smits...
Posted by Landspítali on Thursday, March 18, 2021