Kári fór í markið í vítaspyrnukeppni og Stjarnan hafði betur gegn FH Anton Ingi Leifsson skrifar 19. mars 2021 21:10 Kári Árnason. Vísir/Daníel Þrír leikir fóru fram í A-deild Lengjubikars karla og kvenna í kvöld en leikið var í Víkinni, í Laugardalnum og í Garðabæ.
Það var markaleikur í Víkinni er Keflavík tryggðu sér sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins eftir sigur á heimamönnum í vítaspyrnukeppni. Nikolaj Hansen og Erlingur Agnarsson komu Víkingum í 2-0 en Joey Gibbs minnkaði muninn fyrir gestina. Kristall Máni Ingason kom Víkingum aftur tveimur mörkum yfir en tvö mörk í viðbót frá Joey Gibbs tryggðu Keflvíkingum vítaspyrnukeppni. Ingvar Jónsson, markvörður Víkinga, meiddist við að verja fyrstu spyrnu Keflvíkinga og Kári Árnason þurfti að setja á sig hanskana og fara í markið. Bæði lið brenndu af fyrstu tveimur spyrnum sínum en Atli Barkarson brenndi svo af einu víti til viðbótar. Keflvíkingar skoruðu úr sínum fjórum spyrnum á Kára. Í Laugardal höfðu Eyjamenn betur gegn Þrótti, 1-0, en sigurmarkið kom á 38. mínútu. ÍBV endar í fjórða sæti riðils fjögur með sex stig, tvo sigra í fimm leikjum, en Þróttur endar á botninum með þrjú stig; einn sigur í fimm leikjum. Stjarnan vann 3-1 sigur á FH í A-deild kvenna. Stjarnan er þar af leiðandi með sex stig eftir fjóra leiki í fjórða sætinu en FH er með þrjú stig sæti neðar. Úrslit og markaskorarar eru fengnir frá úrslit.net og fótbolti.net.
Íslenski boltinn Keflavík ÍF Stjarnan FH Þróttur Reykjavík ÍBV Víkingur Reykjavík Mest lesið Týndu báðir vegabréfinu sínu og missa af landsleikjum Fótbolti Hringir og hringir en fær alltaf nei Fótbolti Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Enski boltinn Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Enski boltinn Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Enski boltinn Borce Ilievski snýr aftur í Breiðholtið og tekur við ÍR Körfubolti Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Handbolti „Þessi strákur er bara algjört grín“ Sport San Marínó vann aftur og komst upp Fótbolti Króatar og Danir tryggðu sér sæti í átta liða úrslitunum Fótbolti Fleiri fréttir Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina „Þetta er liðið hans Höskuldar“ „Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ „Einn af þeim bestu og skemmtilegustu sem við höfum séð síðustu ár“ Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út Sjá meira