500. landsleikurinn framundan: Eiður Smári hefur deilt efsta sæti markalistans með öðrum í 932 daga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2021 14:30 Eiður Smári Guðjohnsen kemur inn á sem varamaður fyrir Kolbein Sigþórsson á EM 2016 en þeir hafa verið jafnir í efsta sæti markalista landsliðsins frá því í október 2019. Getty/ Alex Livesey Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu spilar leik númer 500 í Þýskalandi á fimmtudagskvöldið og Vísir ætlar að skoða nokkur met landsliðsins í þessum fyrstu 499 leikjum. Eiður Smári Guðjohnsen hefur verið markahæsti landsliðsmaður Íslands í rúm fjórtán ár en hann hefur þó ekki alltaf verið einn á toppnum. Eiður Smári Guðjohnsen og Kolbeinn Sigþórsson eru tveir markahæstu leikmenn karlalandsliðs Íslands frá upphafi en báðir eru þeir með 26 mörk fyrir íslenska A-landsliðið. Eiður Smári hefur verið markahæstur síðan í október 2007 en Kolbeinn jafnaði við hann í markaskorun fyrir landsliðið í október árið 2019. Eiður Smári skoraði mörkin sín í 88 leikjum en Kolbeinn er búinn að spila 60 landsleiki og er því með betra markahlutfall heldur en Eiður. Eiður Smári og Kolbeinn hafa því deilt efsta sætinu síðan 14. október 2019 eða í 526 daga. Í viðbót voru Eiður Smári og Ríkharður Jónsson jafnir á toppnum í 406 daga eða frá því að Eiður jafnaði markamet Ríkharðs 2. september 2006 þar til að hann sló markametið 13. október 2007. Eiður Smári hefur því deilt efsta sæti markalistans með öðrum í samtals 932 daga. Kolbeinn fær tækifæri til að binda enda á það í næstum leikjum landsliðsins. Eiður Smári skoraði ekki í sex leikjum í röð eftir að hann jafnaði markametið. Kolbeinn hefur nú ekki skorað í sex landsleikjum í röð síðan að hann jafnaði met Eiðs Smára. Ríkharður Jónsson átti markamet landsliðsins í 59 ár frá 1948 til 2007 en Eiður Smári hefur nú átt það í rúm fjórtán ár. Það eru bara fjórir leikmenn sem hafa átti markamet landsliðsins. Albert Guðmundsson skoraði tvö fyrstu mörk A-landsliðsins á móti Noregi 1947, Ríkharður jafnaði við hann með tveimur mörkum á móti Finnum árið eftir og átti metið síðan einn eftir fernu á móti Svíum á Melavellinum 29. júní 1951. Dagar sem markahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu: 21.652 dagar - Ríkharður Jónsson (59 ár, 3 mánuðir, 12 dagar) 5.316 dagar - Eiður Smári Guðjohnsen (14 ár, 6 mánuðir og 21 dagur) 1.437 dagar - Albert Guðmundsson (3 ár, 11 mánuðir og 6 dagar) 527 dagar - Kolbeinn Sigþórsson (1 ár, 5 mánuðir og 10 dagar) HM 2022 í Katar Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM fyrir fullri höll Körfubolti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Enski boltinn Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Fleiri fréttir Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Sjá meira
Eiður Smári Guðjohnsen og Kolbeinn Sigþórsson eru tveir markahæstu leikmenn karlalandsliðs Íslands frá upphafi en báðir eru þeir með 26 mörk fyrir íslenska A-landsliðið. Eiður Smári hefur verið markahæstur síðan í október 2007 en Kolbeinn jafnaði við hann í markaskorun fyrir landsliðið í október árið 2019. Eiður Smári skoraði mörkin sín í 88 leikjum en Kolbeinn er búinn að spila 60 landsleiki og er því með betra markahlutfall heldur en Eiður. Eiður Smári og Kolbeinn hafa því deilt efsta sætinu síðan 14. október 2019 eða í 526 daga. Í viðbót voru Eiður Smári og Ríkharður Jónsson jafnir á toppnum í 406 daga eða frá því að Eiður jafnaði markamet Ríkharðs 2. september 2006 þar til að hann sló markametið 13. október 2007. Eiður Smári hefur því deilt efsta sæti markalistans með öðrum í samtals 932 daga. Kolbeinn fær tækifæri til að binda enda á það í næstum leikjum landsliðsins. Eiður Smári skoraði ekki í sex leikjum í röð eftir að hann jafnaði markametið. Kolbeinn hefur nú ekki skorað í sex landsleikjum í röð síðan að hann jafnaði met Eiðs Smára. Ríkharður Jónsson átti markamet landsliðsins í 59 ár frá 1948 til 2007 en Eiður Smári hefur nú átt það í rúm fjórtán ár. Það eru bara fjórir leikmenn sem hafa átti markamet landsliðsins. Albert Guðmundsson skoraði tvö fyrstu mörk A-landsliðsins á móti Noregi 1947, Ríkharður jafnaði við hann með tveimur mörkum á móti Finnum árið eftir og átti metið síðan einn eftir fernu á móti Svíum á Melavellinum 29. júní 1951. Dagar sem markahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu: 21.652 dagar - Ríkharður Jónsson (59 ár, 3 mánuðir, 12 dagar) 5.316 dagar - Eiður Smári Guðjohnsen (14 ár, 6 mánuðir og 21 dagur) 1.437 dagar - Albert Guðmundsson (3 ár, 11 mánuðir og 6 dagar) 527 dagar - Kolbeinn Sigþórsson (1 ár, 5 mánuðir og 10 dagar)
Dagar sem markahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu: 21.652 dagar - Ríkharður Jónsson (59 ár, 3 mánuðir, 12 dagar) 5.316 dagar - Eiður Smári Guðjohnsen (14 ár, 6 mánuðir og 21 dagur) 1.437 dagar - Albert Guðmundsson (3 ár, 11 mánuðir og 6 dagar) 527 dagar - Kolbeinn Sigþórsson (1 ár, 5 mánuðir og 10 dagar)
HM 2022 í Katar Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM fyrir fullri höll Körfubolti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Enski boltinn Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Fleiri fréttir Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Sjá meira