Portúgal glutraði niður tveggja marka forystu og jafnt hjá Belgum Anton Ingi Leifsson skrifar 27. mars 2021 21:42 Lukaku var á skotskónum í kvöld. Jorge Luis Alvares Pupo/Getty Belgía gerði 1-1 jafntefli er liðið mætti Tékklandi á útivelli í annarri umferð E-riðilsins í undankeppni HM í Katar 2022. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð fjörugur en ekkert mark var þó skorað í fyrri hálfleik. Tékkar komust næst því en skutu í stöng. Staðan var því markalaus í hálfleik en heimamenn komust yfir á 50. mínútu er Lukas Provod skoraði sitt fyrsta landsliðsmark með þrumuskoti. Sú forysta stóð þó ekki lengi því ellefu mínútum síðar skoraði Romelu Lukaku eftir að hafa farið illa með varnarmenn Tékka eftir stoðsendingu Kevin De Bruyne. ⚽ - Romelu Lukaku scores his 59th goal for Belgium. He has been directly involved in 23 goals in his last 16 international appearances (19 goals, 4 assists). #CZEBEL #WorldCupQualifiers— Gracenote Live (@GracenoteLive) March 27, 2021 Bæði lið eru því með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Serbía og Portúgal gerðu 2-2 jafntefli eftir að Portúgalar náðu tveggja stiga forystu. Diogo Jota kom Portúgal yfir á elleftu mínútu og á 36. mínútu tvöfaldaði Jota forystuna en Liverpool-maðurinn að hitna eftir meiðslin fyrr á leiktíðinni. Aleksandar Mitrovic minnkaði muninn í upphafi síðari hálfleiks og Filip Kostic jafnaði svo metin eftir klukkutímaleik. Cristiano Ronaldo virtist tryggja Portúgal sigur á loka sekúndum leiksins en dómarateymið dæmdi boltinn ekki inni. Ekki er VAR í undankeppninni og lokatölur því 2-2. Í sama riðli vann Lúxemborg 1-0 sigur á Írlandi. Serbar og Portúgalar eru með sjö stig, Lúxemborg þrjú en Írland án stiga. 2008 - Coming into tonight Luxembourg had won just three of their 124 away matches in EURO/World Cup qualifiers (D10 L111) and were winless in their last 28 away qualifying matches (D6 L22) since a 2-1 win over Switzerland in September 2008. Alarming. pic.twitter.com/MrPTdAW9ta— OptaJoe (@OptaJoe) March 27, 2021 Malta komst í 2-0 gegn Slóvakíu á útivelli en Slóvakar náðu að koma til baka og bjarga andlitinu. Slóvakía er með tvö stig en Malta eitt. HM 2022 í Katar