Innlent

Fjallaskíðakappi lenti í snjóflóði í Skálafelli

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Snjóflóðið var í Skálafelli á öðrum tímanum.
Snjóflóðið var í Skálafelli á öðrum tímanum. Vísir/vilhelm

Betur fór en á horfðist á öðrum tímanum í dag þegar fjallagönguskíðamaður lenti í snjóflóði í Skálafelli. Sjúkrabíll, lögregla og björgunarsveitir voru send strax á staðinn.

Samvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var skíðamaðurinn kominn upp úr flóðinu af sjálfsdáðum og virðist lítið sem ekkert slasaður.

Í framhaldinu var útkall að mestu leyti afturkallað en einn sjúkrabíll er mættur á svæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×