Skipulags- og samgönguráð borgarinnar samþykkti í dag stefnumörkun um hámarkshraða á borgargötum og sem verður lögð fyrir borgarráð til samþykktar í næstu viku.
„Planið gengur út á það að lækka umferðarhraða í hverfunum þannig að öll hverfi verði með 30 hraða og svo verða stofnbrautir lækkaðar ýmist úr 50 eða 60 niður í 40,“ segir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs.
Þetta á ekki við um stofnbrautir í eigu Vegagerðarinnar eða Faxaflóahafna, þar á meðal hluta helstu stofnæða eins og Miklubrautar, Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar.

Grænu göturnar á þessu korti tákna götur með þrjátíu kílómetra hámarkshraða og líkt og sést verður það meginreglan í öllum hverfum borgarinnar. Þá verður hraðinn á nokkrum fjölförnum götum sem þó eru nú innan marka með fimmtíu kílómetra hámarkshraða einnig lækkaður.
„Það er náttúrulega höfðinn. Hann er mikið að breytast úr 50 í 40 og það er Háaleitisbrautin og Grensásvegur sem fer úr 50 í 40 götu,“ segir Sigurborg.
Stærsta breytingin verður á Suðurlandsbraut þar sem hámarkshraði verður lækkaður úr 60 niður í 40. „En við gerum ráð fyrir að það verði í skrefum og jafnvel á sama tíma og borgarlínan,“ segir Sigurborg.

Byrjað verður að lækka hámarkshraða strax í vor en í heild gæti ferlið tekið þrjú til fjögur ár. Götur verða þrengdar, hjólastígar lagðir og hliðum til þess að marka þrjátíu kílómetra hraða götur verður komið fyrir. Hún segir markmiðið að bæta loftgæði, minnka umferðarhávaða og auka öryggi. Aðgerðin eigi ekki að hafa mikil áhrif á umferðartafir.
„Það verður minniháttar. Þetta er ekki á stofnbrautunum og er bara inni í hverfunum og mun ekki hafa stór áhrif. En í Reykjavíkurborg erum við nýbúin að samþykkja umferðaröryggisáætlun og þar kemur skýrt fram að líf og heilsa fólks kemur fyrst og fremst. Því verður ekki fórnað fyrir aðra hagsmuni samfélagsins líkt og umferðartafir.“