Griezmann skaut Barcelona að hlið Real Madrid

Griezmann heldur Barcelona svo sannarlega inni í toppbaráttunni.
Griezmann heldur Barcelona svo sannarlega inni í toppbaráttunni. Getty Images/Aitor Alcalde

Antoine Griezmann var hetja Barcelona er liðið vann 2-1 sigur á Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Liðið komst að hlið erkifjenda sinna, Real Madrid, í töflunni og sækir að toppsætinu.

Real Madrid missteig sig gegn Real Betis í gærkvöld þar sem liðin skildu jöfn, 0-0. Í ljósi þeirra úrslita gat Barcelona jafnað Real að stigum með sigri á Villarreal í dag.

Það var þó Nígeríumaðurinn Samuel Chukwueze sem komst fyrstur á blað er hann kom þeim gulklæddu í forystu á 26. Mínútu leiksins. Aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði hins vegar Frakkinn Antoine Griezmann fyrir Barcelona og hann bætti öðru marki við sjö mínútum síðar, á 35. Mínútu.

2-1 stóð í hléi, og raunar allt til loka og urðu það úrslit leiksins, Barcelona í vil. Villarreal léku manni færri síðasta hálftímann eftir að Manuel Trigueros fékk að líta beint rautt spjald fyrir ljótt brot á Lionel Messi. Messi gat þó haldið leik áfram og lék allt til loka.

Sigurinn þýðir að Barcelona er með 71 stig í þriðja sæti, sama stigafjölda og Real Madrid, en þeir síðarnefndu hafa leikið einum leik fleira. Atlético Madrid er með 73 stig í efsta sætinu en getur aukið bilið, sigri liðið Athletic Bilbao í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira