Liðin í 3. og 4. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar, Real Madrid og Sevilla skildu jöfn eftir fjörugan leik í spænsku höfuðborginni í kvöld. Góð úrslit fyrir topplið Atletico Madrid.
Fernando sá til þess að Sevilla færi með forystu í leikhlé en hann kom Sevilla yfir um miðjan fyrri hálfleik.
Sevilla leiddi leikinn allt þar til á 67.mínútu þegar Marco Asensio jafnaði metin.
Ivan Rakitic kom Sevilla aftur í forystu á 75.mínútu með marki úr vítaspyrnu en á síðustu sekúndum leiksins varð Diego Carlos fyrir því óláni að setja boltann í eigið net og lokatölur því 2-2.
Atletico Madrid því með tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar þegar þremur umferðum er ólokið.