24 erlendir verkamenn starfsmannaleigunnar 2findjob bjuggu í húsnæðinu að Smiðshöfða 7 þegar Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins skoðaði það að beiðni lögreglu árið 2018. Húsið var í eigu Taxus ehf. Í rýminu var meðal annars búið að útbúa 16 fjögurra fermetra svefnkassa fyrir mennina og var þeim staflað í tvær hæðir. Þá var verið að smíða fleiri slíka kassa í húsnæðinu.
Í skýrslu slökkviliðs er kössunum lýst sem auðbrennanlegu drasli. Engar eldvarnir eða brunaviðvörun voru í húsnæðinu fyrir utan eina brunaslöngu og engin neyðarlýsing. Slökkviliðið kærði eiganda starfsmannaleigunnar til lögreglu og gaf héraðssaksóknari út ákæru síðasta haust. Eigandi 2findjob er ákærður samkvæmt hegningarlögum fyrir að hafa stofnað í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt lífi 24 verkamanna sinna í augljósa hættu.
Aðalmeðferð verður í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegi. Bjarni Kjartansson sviðsstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir málið prófmál.
„Þetta var það alvarlegt og í reynd eitt ljótasta mál sem við höfum staðið frammi fyrir að við töldum mikilvægt að leggja okkar kæru fram og í raun er um prófmál að ræða,“ segir Bjarni og bætir við að hann hafi ekki séð annað eins á 30 ára ferli í slökkviliðinu.
Uppskrift að stórslysi
Bjarni segir að mikil hætta hafi verið á að það kviknaði í húsnæðinu.

„Þarna var trésmíðavinna og plastmerkingar þannig að þarna var klárlega íkveikjuhætta þar sem rafmagn í húsnæðinu var í henglum. Þarna var líka mikill eldsmatur sem hefði getað verulega keyrt áfram eld og reyk. Þegar þetta er dregið saman blasir við skelfileg mynd . Ég fullyrði það að ef þarna hefði kviknað í til dæmis að nóttu til sé ég ekki hvernig fólk hefði átt að geta bjargað sér út. Þetta er uppskrift að stórslysi. Öll efnin voru komin í skálina það vantaði bara að kveikja í,“ segir Bjarni.
Bjarni segir að slökkviliðið hafi lagt fram kærur í tveimur sambærilegum málum.
„Þau mál voru sett á ís á meðan þetta mál fyrir dómstóla því þetta er prófmál og ljótasta málið,“ segir hann.
Starfsmannaleigan 2findjob varð gjaldþrota árið 2019 en fyrirtækið var samkvæmt kennitölu stofnað árið 2014. Í ársreikningi frá 2016 kemur fram að fyrirtækið seldi þjónustu fyrir tæpar 145 milljónir króna.
Margir búa í óleyfishúsnæði og lítið hefur breyst
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu benti á árið 2018 að minnst um þrjú þúsund og sex hundruð manns búi í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu, þar af ellefu hundruð í Hafnarfirði.
Bjarni segir að slökkviliðið hafi ráðist í átaksverkefni vegna slíkra mála árið 2017 en sýnist lítið hafa breyst síðan þá.
„Það byrjaði að bera á þessu árið 2003 og við höfum reynt að kortleggja vandann nokkrum sinnum og ganga frá heildarmati. Það gerðist hins vegar ekki neitt þannig að við hættum slíkum átaksverkefnum. Við höfum ekki mannskap til að sinna öllum þessum fjölda mála. Ef á að gera átak í þessum málum þarf að gera það með sveitarfélögum og öðrum stofnunum,“ segir Bjarni“
Hann segir jafnframt að ef fólki yrði vísað úr óleyfishúsnæði á höfuðborgarsvæðinu gæti skapast mikill húsnæðisvandi.
„Það er ekki hægt að ganga á milli og loka húsnæðinu því þá yrðu nokkur þúsund manns á götunni. Það er líka erfitt að erfitt að krefjast úrbóta þar sem fólk býr í óleyfishúsnæði. Þetta er ekki bara vandi byggingafulltrúa heldur líka skipulagsyfirvalda. Okkur sem ber að hafa eftirlit með þessum málum þ.á.m. sveitarfélaga er því vandi á höndum. Það er engin auðveld lausn sem blasir við því miður,“ segir Bjarni að lokum.