Bayern München var með 55 stig á toppi deildarinnar fyrir leik dagsins, tveimur stigum á undan Wolfsburg sem var sæti neðar. Ljóst var að sigur Bæjara samhliða tapi eða jafntefli hjá Wolfsburg myndi duga þeim til Þýskalandstitilsins.
Bayern kláraði sitt verkefni í Íslendingaslagnum við Bayer Leverkusen. Þýska landsliðskonan Lea Schüller kom Bayern yfir á 38. mínútu og Maria Hegenring tvöfaldaði þá forystu snemma í síðari hálfleiknum. Hin franska Viviane Asseyi skoraði þriðja markið stundarfjórðungi fyrir leikslok, áður en Schüller innsiglaði 4-0 sigur Bæjara undir lok leiks með sínu öðru marki.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir spilaði síðustu níu mínúturnar í liði Bayern og þá er Sandra María Jessen, leikmaður Leverkusen, ólétt og mun ekki leika með liðinu á þessu ári.
Eftir sigurinn þurfti Bayern að bíða tíðinda frá Frankfurt þar sem Wolfsburg var í heimsókn. Wolfsburgar-liðið þurfti að hafa fyrir hlutunum gegn Eintracht Frankfurt en tókst að knýja fram 3-2 sigur.
Munurinn á toppliðunum er því sem fyrr tvö stig og munu úrslitin ekki ráðast fyrr en í lokaumferðinni þann 6. júní. Bayern München mætir þá liði Frankfurt á heimavelli en Wolfsburg fær Werder Bremen í heimsókn.
Wolfsburg hefur unnið þýska titilinn fjögur ár í röð og Bayern hlotið silfur öll árin fjögur. Árin tvö á undan því varð Bayern meistari, tímabilin 2014-15 og 2015-16.