Brynjólfur Andersen lagði upp er Kristiansund endurheimti toppsætið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. júní 2021 16:15 Brynjólfur Andersen Willumsson spilaði seinustu mínúturnar í sigri Kristiansund í dag. Peter Zador/DeFodi Images via Getty Image Tveir leikir fóru fram í norksa fótboltanum í dag og í báðum þeirra voru Íslendingar í eldlínunni. Brynjólfur Andersen Willumsson og félagar í Kristiansund endurheimtu toppsætið með 2-0 sigri gegn Odd og Viðar Ari Jónsson var í byrjunarliði Sandefjord sem tapaði 3-1 gegn Molde.
Það gekk illa að brjóta ísinn í leik Kristiansund og Odd og var markalaust í hálfleik. Það var ekki fyrr en á 63.mínútu sem að heimamenn komu boltanum loksins í netið. Þar var á ferðinni Sander Kartum eftir stoðsendingu frá Olaus Skarsem. Brynjólfur Darri kom inn af varamannabekk Kristiansund á 74.mínútu leiksins og á fyrstu mínútu uppbótartíma lagði hann upp sigurmark Kristiansund fyrir Agon Mucolli. Niðurstaðan 2-0 sigur Kristiansund og liðið á toppi norsku úrvalsdeildarinnar eftir sjö leiki með 15 stig. Viðar Ari Jónsson var í byrjunarliði Sandefjord sem tók á móti Molde. Það tók leikmenn Molde aðeins þrjár mínútur að finna netmöskvanna, en þar var á ferðinni Kristoffer Haugen. Haugen var svo aftur á ferðinni á 17.mínútu, en þó á hinum enda vallarins. Hann varð þá fyrir því óláni að skora sjálfsmark og staðan því orðin jöfn. Ohi Omoijuanfo endurheimti forystu gestanna á 60.mínútu og tíu mínútum seinna tryggði Kristoffer Haugen 3-1 sigur Molde. Sandefjord er í næst neðsta sæti norsku deildarinnar með þrjú stig en Molde í því þriðja með 14.
Norski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Króatía - Slóvenía 29-26 | Dagur stýrði Króötum til sigurs og sendi strákana okkar heim Handbolti Umfjöllun: Ísland - Argentína 30-21 | Strákarnir okkar lifa í voninni Handbolti Gengst við því að hafa gert mistök Handbolti Fyrirliðinn leyfir sér ekki að vona: „Ég held að við séum bara búnir“ Handbolti Umfjöllun: Króatía - Ísland 32-26 | Hjálp Slóvenar! Við klúðruðum þessu Handbolti Loforð Slóvena: Ætla að eyðileggja partýið hjá nágrönnum sínum Handbolti Ótrúlegt atvik á HM: Þjálfari Dana hrinti boðflennu sem dreifði rusli Handbolti Eina tapið svíður enn: „Við vorum „outcoachaðir“ á öllum sviðum“ Handbolti Hvernig kemst Ísland áfram? Handbolti Sjáðu markið sem hefði bjargað Íslandi á HM Handbolti Fleiri fréttir Lék ungan Messi og fer nú á kostum með argentínska landsliðinu Nainggolan handtekinn vegna rannsóknar á kókaínsmygli Þjálfari AC Milan um lætin í gær: Þetta er ekki kirkja Fékk gult spjald fyrir að herma eftir mávi Neymar á leið heim í Santos „Cole, Pep var að spila með þig“ Fékk rautt spjald fyrir að slá eigin liðsfélaga Vill ekki halda áfram eftir komu Freys Amorim segist nota 63 ára markmannsþjálfara sinn frekar en Rashford Markaskorarinn Martínez: Ég var heppinn Börsungar skoruðu sjö Albert og félagar unnu loks leik Martínez hetja Rauðu djöflanna Dagný kom inn af bekknum í mikilvægum sigri Eftir sjö töp í röð tókst Leicester að vinna Tottenham Steinþögðu og sköpuðu skrýtið andrúmsloft á San Siro Karólína hóf árið á stoðsendingu „Ég mun ekki skipta um skoðun á aðeins tveimur mánuðum“ Napoli fyrst til að leggja Juventus að velli Þrenna Mbappé sökkti Valladolid Bournemouth fór illa með Forest Varamaðurinn Calafiori óvænt hetja Arsenal Stefán Teitur með sitt fyrsta mark og Jón Daði hættir ekki að skora Komu til baka eftir skelfilega byrjun Gakpo með tvö og Liverpool í toppmálum Leverkusen tapaði mikilvægum stigum Einbeittur brotavilji Víkinga Rúnari Alex sagt að finna sér nýtt félag Í beinni: Wolves - Arsenal | Skytturnar mega ekki við því að misstíga sig Dýrmætt dramamark fyrir Ísak og Valgeir Sjá meira
Uppgjörið: Króatía - Slóvenía 29-26 | Dagur stýrði Króötum til sigurs og sendi strákana okkar heim Handbolti
Uppgjörið: Króatía - Slóvenía 29-26 | Dagur stýrði Króötum til sigurs og sendi strákana okkar heim Handbolti