Lífið

Lón frumsýnir myndbandið við My Father

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Öll lög hljómsveitarinnar Lón verða á ensku og stefna þeir út fyrir landsteinana.
Öll lög hljómsveitarinnar Lón verða á ensku og stefna þeir út fyrir landsteinana. blóð stúdíó

Í dag gefur hljómsveitin LÓN út sitt fyrsta tónlistarmyndband. Lagið kom út í gær og nefnist My Father og er af væntanlegri plötu sveitarinnar.

Lón skipa Valdimar Guðmundsson, Ómar Guðjónsson, Ásgeir Aðalsteinsson. Þeir hafa unnið að plötunni í ár og segja að verkefnið hafi verið haldreipið þeirra í faraldrinum. Lón vann með Ásgrími Má Friðrikssyni og Ernu Hreinsdóttur hjá Blóð stúdíó og kvikmyndatökumanninum Tómasi Marshall við gerð myndbandsins. 

Myndbandið við My Father má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. 

Klippa: LÓN - My Father

Ásgeir sagði í viðtali á Vísi í gær að lagið My Father sé byggt á pælingum um hvað það er sem við erfum frá foreldrum okkar og hvaða arfleið við færum börnunum okkar.

„Hvernig brostnar vonir, gleði og ótti fyrri kynslóða flæðir í gegnum okkur til næstu kynslóðar. Þetta tengist líka því að þegar við fullorðnumst þá sjáum við að foreldrar okkar eru breiskar manneskjur eins allir aðrir og við finnum kannski að við erum hægt og rólega að breytast í þau.“

Myndbandið var svo tekið upp í gamla farsóttarhúsinu í Þingholtsstræti.

„Hugmyndin kom eftir góðan kaffibolla á milli LÓN og Blóðs. Við vorum sammála um að við vildum vera með kvikmyndaða eða svona cinematic ásýnd en án söguþráðar. Tilfinning og umgjörð myndbandsins eru jakkafataklæddir farandsmenn, staðsettir í augnabliki en í raun án tilgangs. Við vildum að texti lagsins My Father endurspeglaðist í myndbandinu þar sem hljómsveitarmeðlimir eru dagdreymandi um liðna tíð í umhverfi sem tíminn hafði gleymt.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.