Tokic kom Selfyssingum yfir strax á tíundu mínútu leiksins. Hann var svo búinn að tvöfalda forystuna tæplega korteri seinna.
Hasar fyrri hálfleiks var langt frá því að vera lokið, en á 39.mínútu minnkaði Kareem Isiaka muninn fyrir gestina eftir stopsendingu frá Bjarti Barkarsyni.
Á 41.mínútu kom Kenan Turudija Selfyssingum aftur í tveggja marka forystu, og tveim mínútum síðar fékk Tokic vítaspyrnu sem hann tók sjálfur og kom heimamönnum í 4-1 og fullkomnaði þar með þrennu sína.
Á lokamínútu fyrri hálfleiks braut Stefán Þór Ágústsson, markvörður Selfyssinga, af sé innan vítateigs og Harley Willard fór á punktinn fyrir gestina og hann minnkaði muninn aftur í tvö mörk.
Kareem Isiaka minnkaði svo muninn í eitt mark á upphafsmínútu seinni hálfleiks og það sem áður var þriggja marka forskot Selfyssinga virtist ekki lengur svo traust.
Víkingar reyndu hvað þeir gátu til að jafna leikinn, en á 90.mínútu komust Selfyssingar í skyndisókn þar sem Gary Martin gerði út um leikinn. Lokatölur 5-3 á Selfossi og heimamenn lyftu sér upp í níunda sæti, en Víkingar sitja enn á botninum með eitt stig.
Þó að leikur Þróttar R. og Aftureldingar hafi ekki boðið upp á átta mörk eins og leikurinn á Selfossi var það samt hin mesta skemmtun.
Kristófer Óskar Óskarsson kom gestunum yfir á 15.mínútu áður en Kári Steinn Hlífarsson tvöfaldaði forystuna stundafjórðungi seinna.
Kairo Edwards-John minnkaði muninn á 55.mínútu eftir stoðsendingu frá Lárusi Björnssyni.
Arnór Gauti Ragnarsson kom inn á sem varamaður á 57.mínútu, og tveim mínútum seinna var hann búinn að koma Aftureldingu í 3-1.
Það reyndist sigurmark leiksins og Afturelding fer því upp í sjöunda sæti með átta stig. Þróttur R. er enn í því ellefta með fjögur stig.